Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 kynnt í Miðgarði
Opinn kynningarfundur vegna endurskoðaða aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 verður haldinn í Menningarhúsinu Miðgarði miðvikudaginn 2. apríl nk. og stendur frá kl. 16:30-18:30. Þar verður kynning á helstu breytingum í aðalskipulagi og fulltrúar skipulagsnefndar, skipulagsfulltrúi og skipulagsráðgjafar verða á svæðinu til að svara spurningum.
Léttar veitingar og kaffi verða í boði á meðan á fundi stendur.
D A G S K R Á :
16:30 Fundur settur, ávarp frá Sigfúsi Inga Sigfússyni sveitarstjóra Skagafjarðar
16:40 Stutt kynning á helstu breytingum og næstu skref skipulagsferilsins, Stefán Gunnar Thors skipulagsráðgjafi hjá VSÓ ráðgjöf
17:00 Standandi kynningarborð á helstu breytingum aðalskipulagsins :
- Blöndulína 3, fulltrúar frá Landsneti verða á staðnum
- Staðsetning tjaldsvæðis á Sauðárkróki
- Ný aðkoma að Sauðárkróki frá Þverárfjallsvegi og uppbygging byggðar á Nöfunum
- Flokkun landbúnaðarlands og Vegir í náttúru Íslands
- Aðalskipulagið í heild, önnur mál
18:20 Samantekt og næstu skref
- - - - -
Íbúar eru hvattir til að fjölmenna, kynna sér áhugaverð atriði í skipulaginu sem margir hverjir hafa eflaust áhuga á.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.