Þriggja rétta veisla

Zophanías Ari Lárusson og Katrín Benediktsdóttir eru gestgjafar  að Þessu sinni en uppskriftir þeirra birtust árið 2007. Er þar um að ræða þriggja rétta veislu fyrir 6 - 8 manns. 

Klíkuklúbbssúpa Jónasar

  • Humarsoð
  • 200 gr humarskeljar
  • 150 gr gulrætur blaðlaukur og fersk steinselja.
  • 2 msk tómatpúrra.
  • 2 lítrar vatn og 2 msk.koníak.

Humarskeljar eru hitaðar vel í smá olíu og mega brenna svolítið.

Koníakið sett út í, síðan tómat-púrra grænmeti og vatn sett í pottinn og látið sjóða væga suðu í 1-6 klst. Síðan er allt þetta drasl sigtað frá soðinu.

Súpan

  • 100 gr smjörlíki
  • 80 gr hveiti
  • Búin til smjörbolla og soðinu hellt rólega útí eins og allir súpugerðarmenn kunna.
  • 1 ½ dl hvítvín
  • 3 msk koníak
  • 2 tsk kjúklingakraftur
  • 1-2 tsk Picanta jurtasalt
  • rjómi eftir smekk (ca. ¼ líter)

Öllu þessu blandað saman og suðan látin koma upp. Rjómi og humarinn (sem var í skeljunum) settur útí. Að síðustu er sett hvítlaukssmjör í súp-una (svona 1-3 tsk. eftir smekk)

Ps. Oft í klíkuferðunum settum við humarinn og rækjur á pönnu og steiktum í smá stund og skvettum svolítið af hvítvíni yfir og stundum aðeins meira en svolítið. Við settum einnig skelfisk (hörpudisk) en hann má ekki vera nema smá stund á pönnunni svo hann verði ekki eins og skósóli.

Fyllt lambalæri

 

Fylling

  • 1 stk mexíkó-ostur
  • ½ -1 krukka Feta ostur ásamt olíunni
  • ½ krukka Sólþurrkaðir tómatar
  • nokkrar ólífur (eftir smekk)
  • Ristaðar furuhnetur (eftir smekk)

Allt þetta saxað niður og blandað saman og sett inní úrbeinað stórt lambalæri og lokað fyrir með prjóni, sett í ofn á 200 gráður í ca. 1 ½ klst.

Meðlæti: ferskt salat, kartöflugratín og sósa eftir smekk.

Frönsk súkkulaðikaka

  • 4 stk egg
  • 2 dl sykur
  • 200 gr smjör
  • 200 gr suðusúkkulaði
  • 1 dl hveiti

Þeyta egg og sykur vel saman. Bræða smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið smjöri og súkku-laði varlega úti deigið.

Bakið í vel smurðu tertuformi (ekki lausbotna) við 180° í 30-40 mín. (kakan á að vera blaut í miðjunni)

Krem

  • 70 gr smjör
  • 150 gr suðusúkkulaði
  • 1-2 msk síróp

Látið allt saman í pott og bræðið við vægan hita. Látið aðeins kólna og setjið kremið síðan á kökuna og skreytið með jarðaberjum og berið fram með þeyttum rjóma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir