Léttir réttir fyrir helgina
Feykir safnaði saman nokkrum laufléttum uppskriftum í hollari kantinum sem er tilvalið að prófa núna um helgina
Couscous salat
- 250 g couscous
- 1 dós niðursoðnar vatnsheslihnetur
- 1/2 krukka niðursoðnar kjúklingabaunir
- 1/2 rauðlaukur
- 1 appelsína, flysjuð og skorin í bita
- væn lúka af ferskri sítrónubasilíku
Sjóðið couscous eftir leiðbeiningum á pakka, látið kólna.
Blandið restinni af hráefnum saman við.
Uppáhald Jóns frænda
(fyrir 4)
- 1 pakki couscous með sólþurrkuðum tómötum
- 1 paprika
- 5 vænir sveppir
- 1 rauðlaukur
- 4 kjúklingabringur (eða annar kjúklingur)
Sjóðið couscous eftir leiðbeiningum á pakka.
Steikið kjúkling á pönnu og kryddið með maldonsalti og góðri ítalskri kryddblöndu.
Þegar kjúklingurinn er steiktur bætið þið grænmetinu við og að lokum er soðnu couscous bætt á pönnuna.
Berið fram með góðu brauði.
Lax með appelsínu couscous-hjúp
(fyrir 4)
- 4 laxasteikur, ca. 180 g hver
- 50 g couscous
- 6 msk sjóðandi vatn
- fínrifinn börkur og safi úr einni appelsínu
- 1 msk dijon sinnep
- eitthvað gott kryddjurtakrydd frá Pottagöldrum.
Hellið sjóðandi vatninu yfir couscousið og látið standa í nokkrar mónútur.
Blandið appelsínuberkinum, sinnepinu og kryddinu saman við couscousið.
Setjið laxinn í eldfast mót og couscousið yfir.
Hellið appelsínusafanum í kring og steikið við 200 gráðum í ca. 20 mínútur.
Berið fram með góðus salati og ef til vill appelsínusósu.
Salat með avókadó og steinselju
- Lambhagasalat
- 1 avókadó
- appelsínusafi
- smátt saxaður rauðlaukur
- balsamik edik
- söxuð steinselja
Setjið saman að vild og berið fram með laxinum.
Ef vilji er til þess að bera fram sísu með laxinum ætti hún að vera akkúrat svona:
Appelsínusósa
- safi úr tveimur appelsínum
- 1 msk vatn
- 50 g smjör
Setjið appelsínusafann í pott og látið sjóða þangað til hann hefur gufað upp um 1/3.
Setjið þá vatnið út ú ásamt smjörinu og hrærið vel.
Kryddið með salti og pipar.
Ferskur drykkur í stað gosdrykkja
- 1 flaska eplacider
- 2 ferskjur
- 1/2 mangó
- nokkur jarðaber
Skerið ávextina í bita og setjið út í ciderinn.
Gott er að gera þetta í tíma og geyma í ískáp.
Berið fram ískalt og gjarnan með klökum.
Hindberja skyrdrykkur
- 200 g vanilluskyr
- 1/2 banani
- 1 dl frosin hindber
- 100 ml undanrenna
- ísmolar
Setja allt í blandara og þeyta í 30 sek.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.