Syndum okkur í gang fyrir veturinn!
Fyrstu fjórar vikur nóvembermánaðar stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir landsátaki í sundi 1. - 28. nóvember nk. Fram kemur í frétt á heimasíðu sambandsins þá er um er að ræða heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með átakinu er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
Í skilaboðum Lárusar L. Blöndals, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir hann um átakið: „ÍSÍ hefur í gegnum tíðina hvatt landsmenn til að huga að sinni daglegu hreyfingu í gegnum fjölbreytt verkefni sambandsins og nú er komið að landsátaki í sundi. Landsátakið, sem er skipulagt af Almenningsíþróttasviði ÍSÍ í samstarfi við Sundsamband Íslands (SSÍ), er framhald af Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.
Síðustu misserin hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að það skiptir gríðarlegu máli að vera vel á sig kominn, bæði líkamlega og andlega, og góð heilsa er ómetanlegt. Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur í pottinn.
Íslendingar hafa alltaf verið duglegir að stunda sund og við búum svo vel að hafa góðar sundlaugar víða um landið. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Það er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.
ÍSÍ vonast til að landsmenn á öllum aldri taki þátt í átakinu, skelli sér í laugarnar í nóvember og skrái syntar vegalengdir á síðu átaksins, www.syndum.is.“
Finna má hvatningu vegna átaksins á heimasíðum Svf. Skagafjarðar og Blönduósbæjar en í tilefni af landsátakinu dagana 1.-28. nóvember ætlar Blönduósbær að bjóða í sund dagana 1.-5. nóvember með því skilyrði að þátttakendur syndi að lágmarki 50 metra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.