Friðrik Halldór ráðinn fjármála- og skrifstofustjóri Blönduósbæjar

Friðrik Halldór Brynjólfsson. MYND AF VEF BLÖNDUÓSBÆJAR
Friðrik Halldór Brynjólfsson. MYND AF VEF BLÖNDUÓSBÆJAR

Friðrik Halldór Brynjólfsson hefur verið ráðinn fjármála- og skrifstofustjóri Blönduósbæjar, en starfið var auglýst til umsóknar í síðari hluta október. Alls sóttu tíu einstaklingar um stöðuna en eftir vandaða yfirferð og viðtöl þá var Friðrik Halldór metinn hæfastur af umsækjendum og hefur því verið ráðinn til starfa.

Fram kemur í frétt á vef Blönduósbæjar að Friðrik er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á stjórnun og fjármál,frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess er hann nú í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala. „Hann hefur starfað sem aðalbókari hjá Húnavatnshreppi síðastliðin þrjú ár þar sem hann ber meðal annars ábyrgð á bókhaldi sveitarfélagsins, launavinnslu og afstemmingum auk þess að sjá um gjaldkerastörf, reikningahald og vinnu við áætlanagerð og ársreikning,“ segir í fréttinni.

Friðrik ber einnig ábyrgð á bókhaldi Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu. Hann starfaði áður hjá KPMG á endurskoðunarsviði i tvö ár þar sem hann sá m.a. um bókhalds- og uppgjörsvinnu ásamt vinnu við ársreikninga og þar hafði hann aðkomu að fjármálum sveitarfélaga. „Þar áður starfaði hann sem gjaldkeri og þjónustufulltrúi hjá Arion banki á Blönduósi í tæp tvö ár. Friðrik mætir þeim kröfum sem gerðar voru í auglýsingu um menntun, reynslu og þekkingu, en hann mun hefja störf hjá Blönduósbæ fljótlega á nýju ári, eftir nánara samkomulagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir