Enn herðir að vegna Covid

Rímur gera kannski gegn en varla gegn Covid – betra er að vera með grímur.
Rímur gera kannski gegn en varla gegn Covid – betra er að vera með grímur.

Ríkisstjórnin fundaði í morgun í kjölfar þess að nýr minnismiði barst heilbrigðisráðherra frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni í kjölfar töluverðrar uppsveiflu í Covid-smitum. Ákveðið var að herða á samkomutakmörkunum landsmanna og meginatriðin er að skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, fjöldatakmarkanir verða 500 manns og veitingastöðum með vínveitingaleyfi verður skylt að loka tveimur tímum fyrr en nú.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir: „Með notkun hraðprófa verður heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar aðgerðir samkvæmt tillögum sóttvarnalæknis sem hefur áhyggjur af mikilli fjölgun smita, auknum veikindum og vaxandi álagi á heilbrigðiskerfið. Reglur um grímunotkun taka gildi á morgun en aðrar breytingar miðvikudaginn 10. nóvember og gilda í fjórar vikur til þriðjudags 8. desember.

Frá því að bylgja faraldursins sem nú gengur yfir tók að rísa um miðjan júlí sl. hafa tæplega 7.300 greinst með COVID-19, um 160 lagst inn á sjúkrahús (2,2%), 33 á gjörgæsludeild, 17 hafa þurft á öndunarvél að halda og fjórir látist. Sóttvarnalæknir telur hertar takmarkanir innanlands nauðsynlegar til að forða því að neyðarástand skapist í heilbrigðiskerfinu með ófyrirséðum aðgerðum. Ná þurfi daglegum fjölda smita niður í 40-50 og viðhalda þeirri stöðu með takmörkunum þar til betra ónæmi næst í samfélaginu með örvunarbólusetningum og náttúrulegri sýkingu.“

Síðustu tvo daga hafa smit verið í hæstu hæðum hérlendis frá því faraldurinn hófst; 144 smitaðir í gær og 167 í dag. Því var ljóst, miðað við þumalputtaregluna um að 2% smitaðra leggist inn á sjúkrahús, að það stefnir í að álagið á heilbrigðisþjónustuna fari yfir þolmörk. Það er þó gleðilegt fyrir okkur íbúa á Norðurlandi vestra að smit eru fá á okkar svæði en þegar þetta er skrifað eru fjórir í einangrun og þrír í sóttkví. Á landsvísu eru hins vegar um 1.100 í einangrun og ríflega 2.000 manns í sóttkví eða skimunarsóttkví.

Þeir sem vilja fylgjast náið með aðgerðum yfirvalda og ástandinu vegna Covid-bylgjunnar geta að nýju fylgst með þríeykinu Þórólfi, Viðari og Ölmu en þau verða í beinni í skotgröfum höfuðstöðva Almannavarna kl. 15 í dag.

- - - - -

Aðgerðirnar í hnotskurn:

Strax á miðnætti tekur gildi grímuskylda; skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, s.s. í fjölmennum verslunum, almenningssamgöngum og viðlíka. Einnig verður skylt að bera grímu á sitjandi viðburðum (tekur gildi frá og með 6. nóvember).

  • Börn 15 ára og yngri eru undanþegin grímunotkun.
  • Starfsfólki sem veitir einstaklingsbundna þjónustu sem krefst nándar, t.d. hárgreiðslu, nudd og viðlíka, er ekki skylt að bera grímu enda er grímuskylda á viðskiptavinum.
  • Framhaldsskólanemar mega taka niður grímu eftir að sest er í kennslu þótt ekki sé hægt að viðhafa 1 metra nálægðarreglu.

Almennar fjöldatakmarkanir verða 500 manns: Á sitjandi viðburðum er heimilt að víkja frá eins metra nálægðarreglu meðan setið er, að því gefnu að allir beri grímu.

Hraðpróf og skipulagðir viðburðir: Heimilt verður að skipuleggja viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Gestum á slíkum viðburðum er skylt, þrátt fyrir hraðpróf, að bera grímu ef ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu (tekur gildi frá og með 10. nóvember).

Sérstök heimild gildir áfram fyrir skólaskemmtunum í grunn- og framhaldsskólum með notkun hraðprófa.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru vínveitingar: Opnunartími styttist um 2 klst. og ber að loka kl. 23:00 og rýma staðina fyrir miðnætti. Tekin verður upp að nýju skráningarskylda gesta og skulu vínveitingar bornar til sitjandi gesta (tekur gildi frá og með 10. nóvember).

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir