Eldri nemendur Varmahlíðarskóla sýna söngleikinn „6-tán á (von) LAUSU“
Árshátíð eldri nemenda í Varmahlíðarskóla verður í kvöld, föstudaginn 15. janúar, Menningarhúsinu Miðgarði og hefst hún kl. 20. Nemendur skólans setja söngleikurinn „6-tán á (von) LAUSU“ á svið, leikstjórn er í höndum Helgu Rósar Sigfúsdóttur en höfundur verksins er Gísli Rúnar Jónsson. Vakin er athygli á því að aðeins er um þessa einu sýningu að ræða.
Lifandi tónlist í sýningunni er í samvinnu við Tónlistarskóla Skagafjarðar en það eru 10. bekkingar sem bera hitann og þungann af sýningunni. Á heimasíðu skólans segir að verki fjalli um unglinga í framhaldsskóla og það sem á daga þeirra drífur. Innifalið í aðgangseyrinum, sem er 2.500 kr. fyrir 16 ára og eldri og 1.000 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri, er veislukaffi í Varmahlíðarskóla að lokinni sýningu.
Slegið verður upp balli í Miðgarði fyrir 7. - 10. bekk seinna um kvöldið og stendur það til kl. 00:30. Meðlimir úr Hljómsveit kvöldsins ætla að halda uppi stuði og eru sætaferðir í boði með frístundastrætó.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.