Ari og Alladin fengu góðar viðtökur
Á sunnudaginn var haldin í Miðgarði söngskemmtun sem bara yfirskriftina „Frá Ara til Aladdin – barnalög fyrir alla fjölskylduna.“ Þar komu fram ýmsir skagfirskir söngvarar og sungu vinsæl barnalög frá ýmsum tímum, við góðar undirtektir rúmlega 250 gesta á ýmsum aldri.
Alls stigu níu söngvarar á svið, systurnar Sóla og Malen Áskelsdætur, Jón Hallur Ingólfsson, Íris Olga Lúðvíksdóttir, Gunnar Rögnvaldsson og Sigvaldi Gunnarsson, sonur hans. Þá komu þrjár ungar stúlkur fram; Rannveig Stefánsdóttir og Þórgunnur Þórarinsdóttir á Sauðárkróki og Dagný Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars.
Hljómsveit Stefáns Gíslasonar sá um undirleik en auk Stefáns eru það Einar Þorvaldsson gítarleikari, Margeir Friðriksson á bassa og Kristján Kristjánsson sem spilar á trommur, sem skipa hljómsveitina. Einnig tók barnakór lagið með hópnum, samsettur úr skólahóp leikskólans Birkilundar og 1. og 2. bekk Varmahlíðarskóla.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.