Aðventustemning á Sauðárkróki

Það var fjölmenni á Kirkjutorginu á Sauðárkróki þegar ljós voru tendruð á jólatrénu frá Kongsberg. MYNDIR: ÓAB
Það var fjölmenni á Kirkjutorginu á Sauðárkróki þegar ljós voru tendruð á jólatrénu frá Kongsberg. MYNDIR: ÓAB

­­Í gær voru ljós tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi og í gamla bænum á Króknum var aðventustemning og notalegheit. Veðrið var hið besta, örlítið frost og dass af snjó. Kórar sungu, Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri flutti ræðu, Sigvaldi Helgi Gunnarsson stökk úr Voice-settinu og fékk dúndur viðtökur hjá ungum sem öldnum.

Það var Sigfús Ingi Sigfússon sem var kynnir á Kirkjutorginu og á eftir honum mætti nemendur Grunnskólans austan Vatna og sungu nokkur lög. Þá var komið að ræðu Ástu og í kjölfarið var kveikt á jólatrénu. Síðan steig Barnakór Sauðárkrókskirkju og Árskóla á tröppur gamla Pósthússins og söng fleiri jólalög. Þá var komið að Sigvalda og fáir ef ekki allir réttu upp hendi þegar hann spurði hvort einhverjir hefðu kosið hann kvöldið áður. Jú, sumir höfðu hringt oftar en einu sinni og jafnvel oftar en tvisvar. Þá voru ófáir tilbúnir að lána honum almennilega húfu svo kappinn kvefaðist ekki og ekki voru færri fúsir til að lána honum vettlingana sína – en þá var Sigvaldi að grínast, menn spila ekki á gítar með vettlingum! Síðan skellti hann sér í jólalögin.

Að loknu La la la-lagi Sigvalda komu syngjandi jólasveinar með mandarínur og síðan var dansað í kringum jólatréið. Nokkrir ungir drengir höfðu greinilega nokkrar áhyggjur af því hvað einum sveinkanum, sjálfum Stekkjastaur, þætti gott að borða og hvort hann borðaði ekki örugglega bjúgu. Sveinki hélt það nú og þá var hann spurði hvort hann drykki ekki örugglega mjólk. Jú, það stóð heima. Þá lýsti drengurinn því yfir að það yrðu bjúgu og mjólk handa honum í glugganum þegar hann kæmi við hjá sér. – Snilld.

Rótarýklúbbur Sauðárkróks stóð í þriðja sinn fyrir jólahlaðborði í Íþróttahúsi Sauðárkróks í hádeginu. Íbúum í Skagafirði var boðið til veislunnar og víst er að fjölmargir nýttu sér tækifærið, gæddu sér á hangikjöti eða hamborgarhrygg með tilheyrandi.  Fólk lét síðan aur í söfnunarbauka klúbbfélaga en það sem safnast er nýtt til styrktar góðu málefni. Frábært framtak og góð stemning.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir