Unglingaflokkur Tindastóls leikur til úrslita í Maltbikarnum

Drengirnir í unglingaflokki karla hjá Tindastól standa í eldlínunni í Laugardalshöllinni nk. sunnudag þar sem þeir leika til úrslita í Maltbikarnum gegn KR. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður sýndur á RÚV. Undanúrslit meistaraflokka karla og kvenna fóru fram í gær og fyrradag og fara úrslitaleikirnir fram á morgun. Í dag fara fram tveir leikir, 10. flokkur stúlkna og drengjaflokkur og á sunnudaginn 9. flokkur drengja, 10. flokkur drengja, unglingaflokkur kvenna, unglingaflokkur karla og 9. flokkur stúlkna.

Fyrsti leikur unglingaflokks Tindastóls í Maltbikarnum fór fram þann 12. desember sl. á heimavelli gegn Val og endaði hann með sigri Stólanna 88:76. Annar leikurinn fór fram 20. jan. í Grindavík og fór 97:92 og þann 28. janúar fóru Stólarnir í Þorlákshöfn og lögðu heimamenn, Þór, 83:72.

Stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að flykkjast í höllina og styðja við bakið á strákunum.

Hér má sjá dagskrá helgarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir