Þóranna setti nýtt skagfirskt met
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir í UMSS náði frábærum árangri á Reykjavíkurleikunum 2018 sem háðir voru í Laugardalshöllinni laugardaginn 3. febrúar. Leikarnir eru árlegt boðsmót þar sem flest af besta frjálsíþróttafólki landsins keppti auk erlendra gesta frá mörgum löndum. Þrír Skagfirðingar kepptu á mótinu og stóðu sig með sóma.
Þóranna varð í 2. sæti í hástökki kvenna og stökk 1,76 m, sem er nýtt skagfirskt met. Gamla metið átti hún sjálf en það var 1,74 m, sett á MÍ í fyrra. Þessi góði árangur tryggði Þórönnu líka keppnisrétt á NM U23, sem fram fer í Gavle í Svíþjóð 11.- 12. ágúst í sumar.
Ísak Óli Traustason varð í 5. sæti í langstökki þar sem hann stökk 6,96 m og í 8. sæti í 60 m hlaupi á 7,19 sek. Sveinbjörn Óli Svavarsson hljóp 60 m á 7,33 sek.
Öll úrslit mótsins má nálgast HÉR .
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.