Sólar- og blíðuspá fyrir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
03.06.2016
kl. 15.00
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður á Sauðárkróki morgun, laugardaginn 4. Júní og hefst kl. 10. „Það er sannkölluð sólar - og blíðuspá fyrir laugardaginn og við höldum í vonina að sú spá rætist, ef ekki þá verðum við allavega með sól í hjarta,“ segir í tilkynningu um hlaupið.
Farið verður frá Sundlaug Sauðárkróks kl. 10 en sala á bolum hefst þar kl 9 og upphitun hefst kl. 9:45. Eftir hlaupið verður boðið upp á hressingu og frítt í sund fyrir þátttakendur. Einnig er hægt að næla sér í boli í Þreksport og verða þeir í sölu þar í dag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.