Opið héraðsmót í knattspyrnu á Hvammstanga

Frá Hvammstanga. Mynd/BÞ
Frá Hvammstanga. Mynd/BÞ

Á sunnudaginn verður haldið opið héraðsmót í knattspyrnu á Hvammstangavelli. Mótið hefst klukkan 14 og stendur fram eftir degi. Spilað verður í tveimur flokkum, 18-29 ára og 30 ára og eldri. Ekki verða gerðar undantekningar með yngri leikmenn en heimilt er fyrir leikmenn að spila niður um flokk. Leiktími verður tvisvar sinnum tíu mínútur. Sex leikmenn eru inná í hverju liði en hámarks leikmannafjöldi í hverju liði verður sjö manns.

Spilað verður á völlum sem eru ¼ af stærð knattspyrnuvallar og á yngri flokka mörk. Dómgæsla á mótinu skiptist niður á liðin og munu menn dæma leiki sem eru ekki í þeirra flokki.

Skráning liða er á netfangið kormakur@simnet.is fyrir miðnætti laugardagskvöldið 20. ágúst næstkomandi. Þar á að koma fram nafn liðs, leikmenn, kennitölur leikmanna og símanúmer. Einnig verður hægt að skrá sig sem einstaklingur án liðs á sama netfang og þá mun mótsstjórn búa til nýtt lið eða gefa sé þann rétt að fjölga leikmönnum í liðunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir