Ný störf hjá Golfklúbbi Skagafjarðar
Nú er Golfsumarið að fara af stað og er Golfklúbbur Skagafjarðar (GSS) í óða önn að undirbúa sumarið uppi á Hlíðarendavelli. Í fréttatilkynningu frá Kristjáni B. Halldórssyni formanni GSS kemur fram að tvö ný störf hafa verið búin til og ráðnir hafa verið í þau tveir starfsmenn til að starfa uppá Hlíðarendavelli í sumar. Atli Freyr Rafnsson hefur verið ráðinn íþróttastjóri og Karen Owolabi verslunar- og þjónustustjóri.
Atli Freyr, íþróttastjóri GSS
Atli Freyr Rafnsson mun annast þjálfun barna og unglinga ásamt því að sinna almennum félagsmönnum. Hann mun einnig skipuleggja komur gestaþjálfara og starfa með þeim við þjálfun, ásamt því að starfa náið með barna- og unglingadeild GSS. Atli Freyr er stúdent frá FNV og var að ljúka fyrsta ári í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur Atli starfað við þjálfun og fleira hjá GSS undanfarin ár.
Karen Owalabi, verslunar- og þjónustustjóri GSS
Sem verslunar- og þjónustustjóri mun Karen Owalabi sjá um rekstur verslunar í golfskálanum á Hlíðarenda og aðstoða félagsmenn með skráningakerfið Golfbox ásamt fleiru sem tengist rekstri golfskálans. Karen starfaði á vöktum í golfskálanum í fyrra. Hún er stúdent frá MR og hefur lokið einu ári í double major í stjórnmálafræði og lögfræði í Quinnipiac University sem er í Connecticut í Bandaríkjunum.
Það verður gaman að fara á Hlíðarendavöll í sumar og taka þátt í því starfi sem Golfklúbbur Skagafjarðar er að vinna þar.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.