Murr og Hannah búnar að skrifa undir samning við Tindastól
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur samið við tvo af máttarstólpum liðsins frá í sumar um að spila með Bestu deildar liði Stólastúlkna næsta sumar. Það eru þær Hannah Cade og að sjálfsögðu Muriel okkar Tiernan. Þetta hljóta að teljast hinar bestu fréttir enda eru undirbúningsmót fyrir komandi tímabil að rúlla af stað þessa dagana.
Hannah Cade kom til Tindastóls síðasta vetur eftir að hafa spilað með liði Fram í 2. deildinni. Hún er kannski ekki stærst á vellinum en gaf ekki tommu eftir í toppbaráttunni síðasta sumar og spilaði hvern einasta leik með liði Tindastóls, skoraði þrjú mörk og eitt að auki í bikarnum.
Murr þarf auðvitað ekki að kynna fyrir knattspyrnuunnendum eftir að hafa spilað 103 leiki með liði Tindastóls og gert í þeim 106 mörk – án gríns og yfirleitt án þess að fagna. Hún hefur þegar verið á Króknum fimm sumur og var með liðinu í Pepsi Max deildinni í fyrra. Þá háðu meiðsli henni mest allt tímabilið og hún náði sér ekki almennilega á strik. Eftir hæga byrjun í sumar var Murr kominn í góðan gír þegar á leið sumarið og hún ætlar sér örugglega að sýna styrk sinn og getu í Bestu deildinni næsta sumar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.