Kvennamót Golfklúbbs Skagafjarðar

Góð þátttaka var á mótinu. Mynd: Sigríður Svavarsdóttir.
Góð þátttaka var á mótinu. Mynd: Sigríður Svavarsdóttir.

Árlegt kvenmamót var haldið á laugardaginn í dásamlegu veðri á Hlíðarendavelli. Á mótinu spiluðu 44 konur víðsvegar af Norðurlandi. Glæsilegt vinningahlaðborð var í boði fyrirtækja í Skagafirði.

Í fyrsta sæti var Indíana Auður Ólafsdóttir Golfklúbbi Hamars, í öðru sæti Guðlaug Óskarsdóttir Golfklúbbi Akureyrar og í þriðja sæti var Una Karen Guðmundsdóttir Golfklúbbi Skagafjarðar. Kærar þakkir til allra styrktaraðila og þátttakenda.

 /Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir