Körfuboltabúðir Tindastóls 9.-13. ágúst

Körfuboltabúðir Tindastóls verða haldnar vikuna 9.-13.ágúst. Markmið körfuboltabúða Tindastóls er að gefa körfuboltakrökkum, allstaðar af á landinu, skemmtilega upplifun og tækifæri til að vinna í sínum styrkleikum og veikleikum innan og utan vallar undir handleiðslu metnaðarfullra þjálfara við topp aðstæður. Í búðirnar koma þjálfarar úr öllum áttum sem hafa reynslu sem leikmenn og eða af þjálfun á afrekssviði. Það er von okkar að iðkendur muni læra mikið af þeim.

Dagskráin þessa viku verður metnaðarfull og við í skipulagsstjórn vinnum hörðum höndum í að gera dagskránna fjölbreytta, skemmtilega og að iðkendur fái tækifæri til að bæta sig sem mest og fái grunn til að byggja ofan á til framtíðar. Þið viljið ekki missa af þessu fjöri! Takið vikuna 9.-13.ágúst frá, þú getur skráð þig og fengið nánari upplýsingar á facebook síðunni okkar “körfuboltabúðir Tindastóls”. Hlökkum til að sjá ykkur!


/Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir