Íþróttamaður U.M.F.Tindastóls 2016.

Þann 22. desember verður tilkynnt um val á íþróttamanni U.M.F.Tindastóls fyrir árið 2016 og fer athöfnin fram í Húsi frítímans á Sauðárkróki. Auk afhendinga viðurkenninga munu deildirnar kynna starf sitt í stuttu máli. Athöfnin hefst klukkan 20:00.

Þau sem eru tilnefnd koma úr öllum deildum félagsins og hafa hvert á sínu sviði gert garðinn frægan.

Viktor Darri Magnússon - Júdó

Ísak Óli Traustason - Frjálsar

Hrafnhildur Björnsdóttir - Knattspyrna

Ingvi Hrannar Ómarsson - Knattspyrna

Pétur Rúnar Birgisson - Körfubolti

Birna María Sigurðardóttir - Skíði.

Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir velunnarar félagsins boðnir velkomnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir