Israel Martin og Hlynur Freyr taka við Stólastúlkum í körfunni

Israel Martin og Hlynur Freyr kampakátir við undirritun samninga. MYND: UMFT
Israel Martin og Hlynur Freyr kampakátir við undirritun samninga. MYND: UMFT

Í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild Tindastóls kemur fram að deildin hefur samið við Israel Martín Concepción um að taka að sér þjálfun meistaraflokks kvenna og honum til aðstoðar hefur verið ráðinn Króksarinn Hlynur Freyr Einarsson. Þetta eru aldeilis jákvæðar fréttir fyrir Tindastólsfólk og það verður sannarlega spennandi að fylgjast með Stólastúlkum berjast í Subway-deildinni næsta vetur.

Israel Martin er Tindastólsfólki góðu kunnur en hann þjálfaði karlaliðið á árunum 2014-2019, með hléi tímabilið 2015-2016 þegar hann þjálfaði Bakken Bears í dönsku úrvalsdeildinni. Besti árangurinn náðist 2018 þegar liðið vann Bikarmeistaratitil, sinn fyrsta stóra titil, og spilaði til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Israel Martin hefur 12 ára reynslu sem aðalþjálfari, á Íslandi, Kosovo og í Danmörku auk þess sem hann hefur verið í þjálfarateymum yngri landsliða Íslands, aðallega U18 og U20.

Góður dagur fyrir mig og fjölskyldu mína, segir Martin

„Dagurinn í dag er góður dagur fyrir mig og fjölskyldu mína, það eru merk tímamót að skrifa undir nýjan samning við Tindastól. Það er bókstaklega að koma heim. Fyrir 10 árum síðan gaf Tindastóll mér tækifæri til að skapa starfsferil á Íslandi og á Sauðárkróki byggðum við upp fjölskyldu okkar. Fimm árum eftir að við fórum erum við jafn glöð og hamingjusöm að koma aftur og í fyrsta skiptið. Ég er stoltur og glaður að taka við kvennaliði Tindastóls og mun sinna starfinu af ábyrgð, alúð og festu. Áfram Tindastóll!”

Heimamaðurinn Hlynur Freyr Einarsson er Tindastólsfólki einnig góðkunnur. Hann er spilaði upp alla yngri flokka félagsins og upp í meistaraflokk. Árið 2018 spilaði hann með liði Selfoss í 1.deild auk þess að þjálfa yngri flokka félagsins. Frá árinu 2020 hefur hann þjálfað hjá Þór Akureyri og síðastliðinn vetur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna sem náði góðum árangri í Subway deildinni.

„Ég er spenntur fyrir komandi tímabili og verður gaman að starfa aftur undir merkjum Tindastóls.“ segir Hlynur

Kraftmikill hópur sem standa þarf vörð um

Dagur Þór, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir það mjög ánægjulegt að bjóða þá Israel Martin og Hlyn Frey velkomna heim á Krók. „Meistaraflokkur kvenna er kraftmikill hópur, samheldinn og metnaðarfullur sem hefur sýnt það að þær eiga fullt erindi í deild þeirra bestu og þær eiga mikið inni. Undanfarin tímabil í Subway deildinni hefur það sýnt sig að það er áskorun að halda úti kvennaliði sem vill geta keppt meðal þeirra bestu. Það er verkefni okkar allra sem komum að Körfuknattleiksdeild Tindastóls að standa vörð um kvennaliðið og byggja það upp til framtíðar. Israel Martin hefur þá þekkingu og reynslu sem þarf til að leiða liðið áfram og upp á næsta stig og það er sérstaklega ánægjulegt að fá Hlyn Frey honum til aðstoðar, sem hefur mikla hæfileika og metnað í þjálfun. Það verður spennandi að fylgjast með stelpunum taka sín fyrstu skref í Subway deildinni á næsta tímabili.”

Auk þess að þjálfa meistaraflokk kvenna munu þeir Israel Martin og Hlynur Freyr báðir koma að þjálfun yngri flokka.

Tindastólsfólk býður þá báða hjartanlega velkomna heim í Skagafjörðinn!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir