Ísak Óli og Sveinbjörn Óli valdir í landsliðið fyrir Evrópubikar landsliða í frjálsum íþróttum

Sveinbjörn og Ísak á góðri stundu. Mynd: Þorkell Stefánsson
Sveinbjörn og Ísak á góðri stundu. Mynd: Þorkell Stefánsson

Evrópubikar landsliða verður haldin dagana 19.-20. júní í Stara Zagora í Búlgaríu. Ísland er í annarri deild ásamt tólf öðrum löndum. Keppt er í tuttugu greinum í karlaflokki og tuttugum greinum í kvennaflokki. Hvert land sendir einn keppenda í hverja grein og fást tólf stig fyrir fyrsta sætið, ellefu stig fyrir annað sætið og svo koll af kolli. Þrjú lið komast upp um deild og keppa þá í 1. deildinni eftir tvö ár. Frá þessu er greint á vef frjálsíþróttasambandsins, fri.is.

Skagfirðingirnir Ísak Óli Traustason og Sveinbjörn Óli Svavarsson eru á meðal þeirra sem valdnir eru í landsliðhópinn.

Ísak Óli er valinn til að keppa í 110 metra grindahlaupi, stangarstökk og 4x100 metra boðhlaupi.

Sveinbjörn Óli er valinn til að keppa í 4x100 metra boðhlaupi.

Feykir óskar drengjunum til hamingju og óskar þeim góðs gengis í Búlgaríu.

/SMH

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir