Góð byrjun Tindastóls og loksins sigur gegn Val

„Ég reikna með að við spilum vörn í vetur og sendum boltann á milli,“ svaraði Baldur Þór spurningu Stöð2Sport fyrir fyrsta leik Tindastóls í Subway-deildinni þennan veturinn. Með þessu svari hefur hann örugglega glatt alla stuðningsmenn Stólanna sem flestir voru ókátir með spilamennsku liðsins á síðasta tímabili. Andstæðingar Tindastóls í fyrsta leik voru Valsmenn og þó leikur Tindastóls hafi ekki verið fullkominn þá var spiluð hörkuvörn, boltinn var hreyfður vel og leikgleði og vilji leikmanna var smitandi. Niðurstaðan var góður 76-62 sigur og fín byrjun á mótinu.
Það var talsvert um liðið síðan Stólarnir unnu Val síðast og því löngu kominn tími til að bæta það upp. Byrjunarlið Tindastóls var splunkunýtt frá því síðasta vetur; Arnar Björns, Siggi Þorsteins, Jawon Bess, Taiwo Badmus og Thomas Massamba hófu leik en á bekknum voru Pétur, Helgi Rafn, Axel, Viðar og Hannes ásamt bræðrunum ungu og efnilegu; Veigari og Orra Svavarssonum.
Jafnræði var með liðunum framan af leik en Valsmenn voru þó með örlítið forskot, 16-21, þegar fyrsti leikhluti var liðinn. Lið Tindastóls var engu að síður að spila vörnina vel og hún small enn betur saman í öðrum leikhluta því þá fóru gestirnir að pirra sig talsvert á lítilli gestrisni heimamanna. Lið Vals er vel skipað þó enn vanti þá kana og með mörg ágæt vopn í sínu búri. Framan af leikhlutanum héldu þeir í við Stólana og héldu forystunni fram í miðjan leikhlutann þegar Arnar Björns skellti í þrist og kom sínum mönnum yfir, 30-29, en Bertoni og Kári Jóns svöruðu fyrir Val. Síðustu rúmar fjórar mínútur fyrri hálfleiks léku Stólarnir við hvern sinn fingur og breyttu stöðunni úr 32-34 í 45-35. Að öðrum ólöstuðum var þessi leikhluti að mestu í eigu Sigga okkar Þorsteins sem átti flottan leik í gær.
Hlíðarendasveinarnir komust hvorki lönd né strönd í þriðja leikhluta en í raun skoruðu bæði lið lítið en Valsmenn þó sýnu minna. Varnarleikur beggja liða var sterkur en illa gekk að koma boltanum í körfuna. Sextán stigum munaði á liðunum fyrir lokaleikhlutann, staðan 59-43. Nú virtist nokkuð draga af Stólunum í varnarleiknum og sóknarleikur beggja liða var nokkuð villtur en einkenndist kannski helst af því að bæði lið fóru illa með góða möguleika. Valsmenn, og þá sérstaklega Kári og Pavel, fengu galopin 3ja stiga skot en gekk afleitlega að setja þau niður. Kristjófer Acox minnkaði muninn í tíu stig með glæsitroðslu þegar tvær og hálf mínúta var eftir og Valsmenn klúðruðu tveimur álitlegum möguleikum á að minnka muninn enn frekar áður en Arnar gerði út um leikinn með öðrum þristi sínum í leiknum. Staðan 73-60 og innan við mínúta eftir.
Sem fyrr segir var leikur Tindastóls talsvert annar en síðasta vetur og gaman að sjá. Liðið spilaði klikkaða vörn og engir áhorfendur í henni. Allir leikmenn sem við sögu komu skiluðu sínu; það var helst að Arnar og Pétur færu sparlega í að skjóta boltanum. Bess var stigahæstur með 19 stig en á hæla honum kom maður leiksins, Siggi Þorsteins, sem gerði 16 stig og hirti 13 fráköst og virkar í fínu formi. Hinn 36 ára gamli sænski Thomas Massamba virðist vera alvöru foringjaefni í liðinu; hann er ekki að fara að sætta sig við eitthvað hálfkák. Spilaði aggresíva vörn og bar lengstum boltann upp en var sjaldnast að leita að skoti fyrir sjálfan sig. Þá sýndi Badmus flotta takta, eldsnöggur og áræðinn. Helgi Rafn átti flotta innkomu og skilaði sjö stigum og fjórum fráköstum á ellefu mínútum og virtist fíla sig vel við að elta Valsmenn fram að miðju í vörninni.
Í liði Vals var Bertone stigahæstur með 18 stig en Kristófer var engu að síður þeirra drjúgastur með 13 stig og 15 fráköst. Kári Jóns skilaði 16 stigum en náði sér ekki verulega á strik í leiknum frekar en restin af Valsliðinu. Næst fara Tindastólsmenn í Vesturbæinn og mæta liði KR sem vann Breiðablik í framlengdum leik í fyrstu umferð þar sem sóknarleikurinn – ekki varnarleikurinn – fékk að njóta sín.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.