„Get ekki beðið eftir að koma aftur og berjast með liðinu mínu“

Amber með mömmuhlið fjölskyldunnar á liðnum jólum. MYNDIR:AMBER, MURR og ÓAB
Amber með mömmuhlið fjölskyldunnar á liðnum jólum. MYNDIR:AMBER, MURR og ÓAB

Stúlkurnar sem reimuðu á sig takkaskóna fyrir lið Tindastóls síðastliðið sumar og þustu um iðagræna fótboltavelli í efstu deild kvennaboltans, stóðu fyrir sínu og vel það – þrátt fyrir að fall hafi verið niðurstaðan. Fremst meðal jafningja var þó markvörður Stólastúlkna, Amber Michel, sem kemur frá San Diego í Kaliforníu.

Hún átti marga stórleiki í markinu, hélt vörninni á tánum og vakti oft athygli fyrir mögnuð tilþrif og ekki síður mikið keppnisskap. Nokkrum sinnum var hún í liði umferðarinnar hjá fjölmiðlum og í lok tímabilsins í Pepsi Max deildinni var hún valin leikmaður ársins á uppskeruhátíð Tindastóls. Það gladdi því stuðningsfólk Tindastóls þegar fréttist að Amber hefði ákveðið að skrifa undir nýjan samning og spila þriðja sumarið sitt á Króknum. Það gerði líka hin einstaka Murielle Tiernan sem verður þá fimmta sumarið með liði Tindastóls.

Amber er nú í skóla heima í San Diego þar sem hún er að vinna að því að klára meistanám í skipulagsstjórnun.„Þegar ég er ekki að gera það þá er ég að vinna í hlutastarfi fyrir lítinn söfnuð og sé þar um markaðssetningu. Og svo æfi ég auðvitað stíft til að undirbúa mig fyrir næsta tímabil!“ segir Amber sem mætir á klakann 1. febrúar.

Hvernig fannst þér að taka þátt í Pepsi Max deildinni í sumar, var mikill munur á gæðum efstu og næstefstu deildarinnar? „Ég elskaði það alveg. Þetta var sannarlega öðruvísi upplifun en tímabilið á undan. Verulegur munur er á efstu deild og deildunum fyrir neðan. Mér fannst gæði liðinna sem við spiluðum við í sumar hafa verið frábær, hver leikur var svo sannarlega áskorun. En ég tel að við höfum líka komið andstæðingum okkar á óvart og sýnt að Tindastólsliðið ætlaði ekki bara að mæta í leikina – við ætluðum að berjast í hverjum leik og ná í stig.“

Það var reiknað með því að okkur yrði rústað í hverjum leik

Hvað fannst þér vanta upp á hjá liði Tindastóls í sumar? „Ég held að við höfum ekki verið alveg tilbúnar fyrir stökkið í gæðum frá 1. deild og í upp í Pepsi. Hraði leiksins er annar, styrkurinn, leikskipulagið o.s.frv. en hjartað, drifkrafturinn og ástríðan fyrir leiknum VAR til staðar hjá okkur, sem er ástæðan fyrir því að mér finnst að við sem lið höfum staðið okkur ansi vel gegn liðunum í efstu deild á tímabilinu. Sem sagt, ég er svo stolt af því sem liðið okkar áorkaði á þessu ári og lexían sem við lærðum mun örugglega hjálpa okkur þegar við höldum áfram að vinna að því að koma okkur aftur upp í Pepsi Max deildina.“

Varstu ánægð með frammistöðu liðsins í sumar? „Auðvitað er ég ekki ánægð með að við höfum fallið niður en hins vegar er ég svo stolt af liðinu. Flestir efuðust um liðið okkar. Það var reiknað með því að okkur yrði rústað í hverjum leik og enduðum í neðsta sæti,“ segir Amber en lið Tindastóls endaði í níunda sæti með 14 stig, næst neðst en fékk í raun aðeins tvo skelli allt sumarið og í bæði skiptin gegn meistaraefnunum í Val. „Við áttum möguleika í nánast hverjum einasta leik, flestir leikirnir sem við töpuðum töpuðum við með aðeins einu marki. Við sönnuðum fyrir okkur og Íslendingum að við gætum keppt í Pepsi Max deildinni og ég held að það sé sem við getum verið stolt af. Ég áttaði mig á því fyrsta tímabilið mitt hér að í Tindastólsliðinu er skipað dugnaðarforkum. Sama hver staðan er, liðið hættir aldrei að berjast og það er eitthvað sérstakt.“

Hafið þið verið ánægðar með lífið og tilveruna á Íslandi? „Ég hef nú sagt ansi mörgum að Sauðárkrókur er heimili mitt að heiman. Nú er það þannig að það er svolítið skrítið að vera komin aftur til Ameríku þegar ég hef verið meirihluti ársins á Íslandi. Ég elska að vera á Íslandi og það sem mér líkar auðvitað best við Ísland er fólkið. Ég er svo þakklát fyrir vináttuna og samböndin sem hafa orðið til og halda áfram að myndast. Svo elska ég norðurljósin, eitt það svalasta sem ég hef séð á ævinni. Ég held að vísu ekki jafn mikið upp á veðrið,“ segir Amber hlæjandi. „Ég hef örugglega aðlagast því aðeins betur í ár en það er samt frekar kalt fyrir mig.“

Þið Murr og Jackie hafið verið duglegar að ferðast um landið og þekkið það örugglega betur en flestir Íslendingar, tók tíma að venjast Íslandi? „Ég held að það að búa annars staðar en þar sem þú ólst feli vissulega í sér áskoranir og breytingar og það tekur tíma að venjast þeim. Það tók sannarlega tíma að venjast því að leyfilegur hámarkshraði er talsvert annar hér – við keyrum miklu hraðar í Ameríku. Annað er að vera í kringum fólk sem talar annað tungumál. Þetta hefur verið lærdómsríkt, ég skil örugglega meiri íslensku en ég get talað, en ég er að vinna í þessu. Ég er þakklát fyrir að flestir tala ensku og það hefur sannarlega hjálpað. Landið er einstaklega fallegt og ég er þakklát fyrir að við höfum getað ferðast og séð svo margt á Íslandi.“

Þú fékkst fjölskylduna þína í heimsókn í sumar, sáu þau þig spila með liði Tindastóls og hver var þeirra upplifun af Íslandi – þú mátt segja sannleikann? „Fjölskyldu minni fannst landið hrífandi fallegt. Ég fór með þeim í skoðunarferðir um landið og þau voru uppnumin af öllu sem við upplifðum. Svo sáu þau mig spila tvo leiki með Tindastólsliðinu og elskuðu stemninguna. Fjölskyldan mín hefur alltaf stutt rækilega við bakið á mér þegar kemur að fótbolta og ég mun ævinlega vera þakklát fyrir það. Ég var svo ánægð að þau fengu að hitta flesta vini mína og íslensku fjölskylduna. Í sannleika sagt upplifðu þau frábæran tíma á ferðalagi um Ísland og að sjá mig spila.“

Við börðumst fyrir öllum stigum sem við fengum

Þú varst valin besti leikmaður Tindastóls í sumar á uppskeruhátíðinni og varst í nokkur skipti í liði umferðarinnar í Pepsi Max deildinni, hvað fannst þér um það? „Ég er bara mjög auðmjúk yfir því að hafa fengið þessa viðurkenningu. Ég væri ekki þar sem ég er án liðsins míns og sérstaklega varnarinnar minnar. Við börðumst fyrir öllum stigum sem við fengum á þessu tímabili og gerðum okkar besta.“

Nú hefur þú ákveðið að spila með liði Tindastóls næsta sumar, hvaða væntingar hefurðu fyrir tímabilið?„Væntingar mínar standa fyrst og fremst til þess að liðið vaxi og batni yfir tímabilið og að við gerum öll okkar besta. Þar fyrir utan er planið að vinna deildina á þessu tímabili og komast aftur upp í Pepsi Max deildina. Ég er svo spennt, liðið okkar hefur fengið smá reynslu af því hvernig það er að vera í efstu deild og ég veit að þar á Tindastóll heima. Við ætlum að læra af því sem við gerðum á síðasta tímabili og vonandi veitir sú reynsla okkur viðspyrnu til að taka deildina með trompi á næsta tímabili.“

Blaðamaður spyr Amber hvort hún geti rifjað upp eitthvað fyndið sem hafi hent hana á Íslandi og hún rifjar upp fyrstu ferðina á skíðasvæðinu í Tindastóli en þangað fór hún með Mur og Jackie sem störfuðu á tímabili á skíðasvæðinu eftir að þær komu á Krókinn síðasta vetur. „Það var sannarlega vandræðalegt þegar ég prófaði að fara á snjóbretti í Tindastólnum,“ segir Amber. „Lyfturnar hér eru talsvert öðruvísi en þær í Ameríku. Ég komst með engu móti upp brekkuna í toglyftunni, ég datt endalaust. Það endaði með því að ég þurfti að sitja á snjóbrettinu mínu og láta Mur rétta mér snúruna. Svo var ég bara dregin upp brekkuna sitjandi á snjóbrettinu – það var eina leiðin upp,“ segir Amber og hlær.

Einhver skilaboð að lokum til stuðningsmanna og vina á Íslandi? „Takk! Takk fyrir allan stuðninginn og ástina sem þið gefið stöðugt. Takk fyrir að gera Sauðárkrók og Ísland að heimili mínu að heiman. Ég þakka liðinu mínu og bæjarfélaginu fyrir að hafa tekið á móti mér opnum örmum. Og ég get ekki beðið eftir að koma aftur og berjast með liðinu okkar til að komast aftur upp í Pepsi Max deildina. Gleðileg jól, farsælt nýtt ár og sjáumst fljótlega!“

- - - - -

Jólaspurningar

Hvernig heldur þú upp á jólin heima? „Jólin snúast um fjölskylduna fyrir mér. Við ferðumst venjulega eitthvað og fjölskyldan kemur saman til að halda jól. Á jóladag fáum við venjulega smákökur eða kleinuhringi í morgunmat, við opnum gjafir og spilum eða förum í leiki það sem eftir er dagsins.

Hvað finnst þér ómissandi á jólunum? „Ég held bara að það sé að vera með fjölskyldunni. Það eru aðeins örfá skipti á ári sem fjölskyldan getur komið saman og ég held að hátíðin væri ekki sú sama ef ég gæti ekki hitt alla.“

Hvað er í jólamatinn? „Í jólamatinn erum við að jafnaði með svínakjöt, bkartöflugratín, salat, brauðrúllur, grænar baunir og maís. Í eftirrétt höfum við böku [pie] og piparmyntuís.“

Hvað er besta jólalagið? „This Christmas með Chris Brown.“

- - - - - 
Viðtalið birtist áður í 48. tölublaði Feykis 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir