Acai verður áfram með Kormáki Hvöt

Acai Nauset Elvira Rodriguez, einn allra mikilvægasti leikmaður Kormáks Hvatar úr uppferðarsumrinu 2021 hefur gert samkomulag um að spila áfram með liðinu sumarið 2022. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref í áttina að því að tryggja að mikilvægustu púslin taki sér stöðu og geri sig klár í þeirri spennandi baráttu sem er framundan í 3. deild.

Acai spilaði 16 leiki með Kormáki Hvöt í miðverðinum og skoraði næstum því eitt mark. Hann les leikinn gríðarlega vel og kom ótal sinnum til bjargar á síðustu stundu. Utan vallar er Akai hvers manns hugljúfi og hlakkar mikið til að koma aftur heim á Blönduós.

Í vetur hefur Acai spilað með liði Yaiza í hinni heimabyggð sinni, Kanaríeyjum. Velkominn til baka Acai!

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir