Aðalfundur Golfklúbbs Skagafjarðar
Aðalfundur GSS 2020 var haldinn 30. nóvember. Fundurinn var netfundur að hluta: stjórnin var í skála en aðrir fundarmenn sóttu fundinn með hjálp Teams.
Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf.
Sigurjón Gestsson var kjörinn heiðursfélagi GSS fyrir áratuga sjálfboðavinnu við gróðursetningu og umhirðu gróðurs á Hlíðarendavelli.
Árið 2020 kom vel út í golfinu, starfið var blómlegt, félögum fjölgaði og fjöldi ferðakylfinga heimsótti Skagafjörð. Félagið varð 50 ára og fagnaði stórafmælinu með ýmsum hætti.
Ekki urðu miklar breytingar á stjórn og nefndum. Nýtt fólk tekur við af þeim sem fara úr stjórn og nefndum eftir farsælt starf. Stjórn og nefndir 2021: http://www.gss.is/um-gss/stjornnefndir/
Á fundinum var greint frá endurnýjun samninga milli GSS og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Einnig var sagt frá afmælisgjöf sveitarfélagsins upp í kaup á golfhermi. Nýr golfhermir mun koma sér vel í starfinu, ekki síst við þjálfun barna og unglinga.
Stórn GSS þakkar félögum fyrir gott golfár 2020 og fyrirtækjum fyrir stuðninginn á 50 ára afmælisárinu. Við hlökkum til starfsins 2021 og bjóðum nýja félaga velkomna.
Nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á heimasíðu GSS, www.gss.is
Stjórn GSS
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.