Ekkert sérlega áhugaverðar sveitir

Herra Hundfúll rúllaði í gegnum síðu Markaðsstofu Norðurlands, northiceland.is, sem er fínasta síða. Fletti síðan spenntur í gegnum áhugaverði staði á svæðinu sem finna mátti á forsíðunni. Fékk vægt áfall þegar í ljós kom að enginn þeirra átta staða sem nefndir voru áhugaverðir voru í Eyjafirði eða Skagafirði. Auðvitað er þetta skellur fyrir þessi fallegu svæði og hefur Hundfúll þá sérstaklega áhyggjur af því hvað Eyfirðingum finnst um þetta tillitsleysi – hann veit að Skagfirðingar kippa sér ekki upp við svona smotterí... samt pínu hundfúlt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir