Vilja lækka aldursmörk á hvatapeningareglum niður í 0 ára

Mynd: Pexels/Anna Shvets
Mynd: Pexels/Anna Shvets

Á síðasta fundi félagsmála- og tómstundanefndar Skagafjarðar lögðu VG og Óháð ásamt Byggðalista fram tillögu um að reglur um núverandi aldurstakmark úthlutunar hvatapeninga verði breytt þannig að ungabörnum gefist strax kostur á úthlutun, þ.e. fyrir sinn fyrsta afmælisdag, í stað fimm ára eins og nú er og til 18 ára aldurs.

Í greinargergerð tillögunnar segir að sveitarfélagið Skagafjörður sé heilsueflandi samfélag og ætti því að stuðla að jöfnum tækifærum fyrir öll börn héraðsins til að stunda skipulagt íþrótta- og tómstundastarf. Jöfnuður ætti því að gilda í úthlutun hvatapeninga og öll börn ættu því að eiga rétt á úthlutun hvatapeninga.

Fulltrúar meirihlutans telja nægilega sé gert í þeim efnum og að vel sé staðið að stuðningi við íþrótta-, lista- og tómstundastarf í Skagafirði „Samkvæmt nýlegri könnun verðlagseftirlits ASÍ á styrkjum til tómstundastarfs á meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þá hafa frístundastyrkir hækkað hlutfallslega mest hjá sveitarfélaginu Skagafirði frá árinu 2020, eða um 60%, og eru hvatapeningar nú að upphæð 40 þúsund krónur á ári. Hvatapeningar í Skagafirði taka til barna frá og með því ári sem 5 ára aldri er náð, til og með því ári sem 18 ára aldri er náð. Hvatapeninga í Skagafirði er hægt að nýta til að greiða niður æfinga-/þátttökugjöld í skipulögðu íþrótta-, lista- og tómstundastarfi og er ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu, fjölbreytileika íþrótta-, lista- og tómstundastarfs og styrkja félagslegt umhverfi og hafa jákvæð áhrif á þroska barna og unglinga.

Upphæð hvatapeninga í Skagafirði er um miðbik þeirrar fjárhæðar sem framangreind sveitarfélög eru með í styrki til frístundastyrkja en af þeim sveitarfélögum sem á annað borð bjóða upp á slíka styrki er fjárhæðin frá 10 þúsund krónum á ári og upp í 56 þúsund krónur á ári. Hæstu styrkirnir eru veittir hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þar sem iðkendagjöld barna eru að jafnaði mun hærri en gerist víða á landsbyggðinni.

Af þeim 20 sveitarfélögum sem verðlagskönnun ASÍ nær til eru langflest þeirra 18 sveitarfélaga sem á annað borð bjóða upp á frístundastyrki með aldursviðmið frá 5 eða 6 ára aldri, eða 13 sveitarfélög. Eitt sveitarfélag er með viðmið frá 4 ára aldri og fjögur sveitarfélög með viðmið frá 0-2 ára aldri.

Af þessu má sjá að vel er staðið að stuðningi við íþrótta-, lista- og tómstundastarf í Skagafirði þar sem fjölmargir aðilar leggja sig fram um að bjóða upp á fjölbreytta starfsemi á sanngjörnum kjörum,“ segir í bókun fulltrúa meirihlutans en tillagan var felld með tveimur atkvæðum þeirra.

Fulltrúar VG og Óháðra og Byggðalistans sætta sig ekki við neitt miðjumoð og telja að Skagafjörður ætti að vera leiðandi í þessum málum í stað þess að vera meðaltal annarra sveitarfélaga.

„Okkur þykir afar miður að öll börn í Skagafirði sitji ekki við sama borð þegar kemur að úthlutun hvatapeninga sem skilar mismunun en ekki jöfnuð.

Það er ekki skrítið að hvatarpeningar hafi hlutfallslega hækkað mest í sveitarfélaginu Skagafirði þar sem þeir voru 8.000 kr. frá upphafi úthlutunar hvatapeninga til ársins 2018 þar sem þeir voru hækkaðir upp í 25.000 kr. og svo árið 2020 í 40.000 kr. Vissulega var tekið stórt stökk í hækkun hvatarpeninga enda var löngu kominn tími til þess.

Samkvæmt tölum frístundastjóra má glögglega sjá að margar tómstunda- og íþróttagreinar eru í boði fyrir 5 ára og yngri. Einnig má sjá að um 20-30 börn á þeim aldri nýta sér samveru með foreldrum sínum í þeim greinum sem í boði eru. Það væri ánægjulegt ef heilsueflandi- og fjölskylduvænn Skagafjörður væri leiðandi í þessum málum í stað þess að vera meðaltal annarra sveitarfélaga.“

Næsta mál á dagskrá nefndarinnar snérist um reglur Skagafjarðar um Hvatapeninga en þær eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði. Þær voru samþykktar af meirihluta félagsmála- og tómstundanefndar og þeim vísað til byggðaráðs til nánari umfjöllunar. Fulltrúar VG og Óháðra og Byggðalistans sátu hjá við afgreiðslu þess máls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir