Vetrarþjónustu mjög ábótavant við ferðamannastaði
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands telur það óásættanlegt að vetrarþjónustu að vegum á ferðamannastöðum á Norðurlandi sé jafn ábótavant og raun ber vitni. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á síðasta stjórnarfundi MN.
Á heimasíðu MN, northiceland.is, er sérstaklega bent á vetrarþjónustu á Vatnsnesvegi að Hvítserk og á Demantshringnum, sem var formlega opnaður á síðasta ári, um það leyti sem nýr og uppbyggður vegur var opnaður frá Dettifossi að Ásbyrgi.
„Ástandið er í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um jafna árstíðasveiflu í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan hefur upplifað mikil áföll undanfarin misseri og ríður á að ryðja úr vegi hindrunum sem koma í veg fyrir viðspyrnu í greininni, enda eykur góð vetrarþjónusta líkurnar á verðmætasköpun í ferðaþjónustu. Skortur á vetrarþjónustu stofnar öryggi vegfarenda í óþarfa hættu og ætti að vera forgangsmál að bæta þar úr til að tryggja öryggi og upplifun gesta og íbúa. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands skorar á ríkisvaldið að bæta til muna vetrarþjónustu á vinsælum ferðamannastöðum á svæðinu og horfa þar sérstaklega til nýopnaðs Demantshrings og Vatnsnesvegar að Hvítserk,” segir í ályktuninni.
Aukinheldur kemur fram í frétt MN að í markaðssetningu á áfangastaðnum Norðurlandi skipti samgöngur gríðarlega miklu máli og þá sérstaklega með tilliti til vetrarferðaþjónustu. „Áfangastaðir á borð við Hvítserk, Dettifoss og Ásbyrgi eru eftirsóttir hjá erlendum ferðaskrifstofum og ferðamönnum allan ársins hring. MN hefur fundið fyrir þessum mikla áhuga á ferðakaupstefnum erlendis og því er til mikils að vinna að koma á bættri vetrarþjónustu á Norðurlandi.“ segir þar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.