Ostasalat og kjúklingur með pestó og paprikusnakki
Matgæðingar í tbl. 30 í fyrra voru Freyja Rut Emilsdóttir og Helgi Jóhannesson en þau búa á Króknum ásamt börnum sínum; Emmu Katrínu 16 ára, Júlíu Marín alveg að verða 13 ára og tvíburunum Aroni Elmari og Jóel Darra sem eru 7 ára. Sú elsta, Laufey Helga, býr í Reykjavík.
Freyja er uppalin á Króknum en eftir um 20 ára búsetu í borginni flutti fjölskyldan norður árið 2018 og kom sér fyrir í Ártúninu. Freyja starfar sem framkvæmdastjóri 1238 og Helgi er flugmaður hjá Icelandair.
RÉTTUR1
Ostasalatið hans Helga
1 stk. hvítlauksostur
1 stk. Mexicoostur
græn vínber
blaðlaukur
1 dós sýrður rjómi
Aðferð: Ostarnir skornir í litla bita, vínberin skorin í tvennt og blaðlaukur saxaður frekar smátt, sett í eina skál og sýrðum rjóma blandað við. Þetta er mjög gott með kexi eða góðu súrdeigsbrauði, tilvalið snarl og alveg ómissandi í brönsinn.
FÖSTUDAGSKJÚKLINGUR FREYJU
Kjúklingur með pestó og paprikusnakki
kjúklingabringur
rautt pesto
rifinn ostur
paprikusnakk
Aðferð: Þurrkið kjúklinginn með eldhús bréfi, penslið með olíu, salt og pipar. Veltið kjúklingnum upp úr rauðu pesto og svo snakki sem búið er að mylja niður. Setjið í eldfast mót, stráið osti og aðeins af snakkinu yfir. Bakið í ofni við 180°C í 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Gott að bera fram með kaldri hvítlaukssósu, smjörsteiktum kartöflum og fersku salati ásamt afganginum af paprikusnakkinu.
Verði ykkur að góðu!
Freyja og Helgi skoruðu á Kristjönu, sem gerir allar fallegu kökurnar í Gránu og er algjör snillingur í eldhúsinu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.