Tugmilljóna hækkun á leiguverði Víðidalsár
Tilboð í eina vinsælustu veiðiá landsins, Víðidalsá í Vestur-Húnavatnssýslu, voru opnuð í gær. Samkvæmt veiðivefnum Sporðaköstum á Mbl.is bárust tilboð frá fimm aðilum og nokkuð ljóst að leiguverðið, sem nú er um 80 milljónir króna á ári, mun hækka um tugi milljóna en nokkur tilboðanna sem bárust munu hafa verið vel yfir 100 milljónir króna.
Hæsta boð var um 115 milljónir króna og barst það frá núverandi leigutökum, Starir ehf., í samstarfi við landeigendur kennda við Stóru-Borg í Víðidal. Tvö veiðihús eru hluti af leigunni en veiðiréttur var að þessu sinni boðinn út til fimm ára og hefst nýtt leigutímabil sumarið 2024.
Sporðaköst hafa eftir Birni Magnússyni, bóndi að Hólabaki og formanni Veiðifélags Víðidalsár, að hann sé „...ánægður með tilboðin sem bárust en ljóst er að þessi tilboð hljóða upp á mikla hækkun til landeigenda, eða sem nemur tugum milljónum króna á ári. Að sama skapi er ljóst að hækkun á veiðileyfum í Víðidalsá verður mikil. Björn átti von á fleiri tilboðum en er ánægður með þau sem bárust. Veiðifélagið mun taka sér tíma í að fara yfir tilboðin að sögn Björns og ræða við þá sem buðu, áður en félagsfundur verður kallaður saman til að kjósa um tillögu stjórnar.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.