Tindastólsmaðurinn Steven Beattie varð írskur bikarmeistari með Cork
Það er alltaf gaman að geta sagt frá góðum árangri fyrrum knattspyrnumanna Tindastóls. Nú um helgina varð hinn írskættaði Steven Beattie bikarmeistari með liði sínu Cork í dramatískum sigri á FH-bönunum í Dundalk.
Beattie, sem lék tvö sumur í framlínunni með liði Tindastóls við góðan orðstýr, átti stóran þátt í sigurmarki Cork. Hann tók þá langt innkast inn á Sean Maguire sem náði að snúa sér í teignum og skjóta að marki Dundalk í uppbótartíma í framlengingu. Boltinn fór í einn varnarmanna Dundalk og rúllaði óverjandi í markið.
Feykir óskar Steven Beattie til hamingju með bikarmeistaratitillin.
Umfjöllun um leikinn í RTE og myndband af markinu >
Viðtal við Beattie frá því árið 2012 >
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.