Þrjár kindur til viðbótar greinast með ARR arfgerðina
Í dag komu niðurstöður úr arfgerðargreiningum á sýnum 95 kinda í Þernunesi og segir á heimasíðu Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins að þrjár ær hafi bæst í hóp „gullklumpanna“ sem bera ARR arfgerðina sem er hin klassíska verndandi arfgerð gegn riðuveiki í sauðfé. Eru því alls níu kindur á bænum sem vitað er að bera þessa arfgerð.
Fram kemur að tvær af þeim ám sem nú hafa greinst eru hyrndar og eru þær því fyrstu hyrndu kindurnar sem finnast með ARR hér á landi. Allar eru þær arfblendnar fyrir arfgerðinni.
Í síðustu sýnatöku í Þernunesi voru teknir fyrir elstu árgangarnir (allar ær fæddar 2014 og eldri), allir hrútar og valdar ær sem tengdust þeim sem áður höfðu verið greindar með ARR. Tvær af þeim sem nú greinast (þær hyrndu) eru fremur fjarskyldar hinum og engin þessara þriggja kinda er tengd Njálu frá Kambi.
Haldið verður áfram að kortleggja ARR arfgerðina í Þernunesi og segir í frétt RML að þessi vinna sé partur af því rannsóknarverkefni sem unnið er að í samstarfi við Keldur og Karólínu Elísabetardóttur í Hvammshlíð o.fl.
„Þá er í gangi umfangsmikið átaksverkefni á vegum RML í arfgerðargreiningum og á næstu vikum og mánuðum verða tekin sýni úr meira en 20.000 kindum vítt og breytt um landið. Fyrstu sýni úr því verkefni eru farin í greiningu en engar niðurstöður liggja fyrir. Þegar sú sýnataka verður afstaðin ætti að fást ágæt mynd á það hversu ARR arfgerðin er útbreidd í stofninum – eða hvort Þernunes sé eina uppsprettan.“ Sjá nánar á rml.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.