Þjóðin hafnar ESB – Jón Bjarnason

Í hverri skoðanakönnunni á fætur annarri nú síðustu daga  kemur fram að mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu.  Í Fréttablaðskönnun 26. jan sl. var 60%  þeirra sem svöruðu andvíg umsókn að ESB .

 

Andstaðan er hörðust á landsbyggðinni þar sem tæp 70% er andvíg umsókn en liðlega 53% á höfuðborgarsvæðinu  skipa sér einnig í þann hóp.  Yfirgnæfandi meirihluti eða liðlega 71% stuðningsfólks Vinstri grænna vill ekki sækja um aðild. Sá eindregni vilji stuðningsfólks VG  er í fullu samræmi við stefnu  hreyfingarinnar í ESB- málum.

 

Þrátt fyrir mjög harðan opinberan  áróður ESB sinna á undanförnum vikum, stefnubreytingu Framsóknarflokksins sem nú vill aðildarviðræður, sýnir þessi skoðanakönnun að þjóðin telur nú önnur brýnni mál að fást við en ESB- dekur og aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem Framsókn og Samfylking hafa sett á oddinn í næstu kosningum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir