Þarf ekki stórar tölur til að valda óbætanlegu tjóni á villtu stofnunum
Feykir sagði frá því í vikubyrjun að tveir ætlaðir eldislaxar hafi verið háfaðir upp úr laxastiga við Blöndu um liðna helgi. Mbl.is greindi síðan frá því í gær að níu grunsamlegir laxar til viðbótar hafi nú bæst í hópinn og laxarnir því orðnir ellefu sem Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri Hafrannsóknarstofnunar, kippti með sér suður til rannsóknar nú í vikunni.
Sporðakastið á mbl.is segir sérfróða menn „...óttast að hundruð þessara laxa séu í sjónum vestan við landið. Hvort og hvenær þeir halda í ferskvatn er ekki hægt að svara en það þarf ekki stórar tölur til að valda óbætanlegu tjóni á villtu stofnunum í þeim ám þar sem eldislaxinn hefur gert innrás.“
Í fréttinni segir ennfremur að talið sé að um 750 villtir laxar hafi gengið í gegnum stiga og teljara í Blöndu í sumar. „Miðað við hversu margir eldislaxar eru staðfestir á vatnasvæðinu er auðvelt að átta sig á hversu mikil hættan er á erfðablöndun. Ómögulegt er að segja hversu margir eldislaxar eru þegar gengnir í Blöndu en einn slíkur veiddist í síðustu viku í Svartá.“
Feykir hafði samband við veiðiréttarhafa í Skagafirði, Valgarð Ragnarsson, en hann kannaðist ekki við að eldislax hefði fundist í skagfirsku ánum ennþá, í það minnsta ekki í Húseyjarkvíslinni og Staðará.
Nánar má lesa um málið á mbl.is og víðar.
UPPFÆRT. Í fréttum Sjónvarps í kvöld var sagt frá því að eldislax hefði fundist í Hjaltadalsá í Skagafirði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.