Textílmiðstöðin með fjölþjóðlega vinnustofu á Blönduósi

Þátttakendur í vinnustofunni. MYND AF SÍÐU TEXTÍLMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Þátttakendur í vinnustofunni. MYND AF SÍÐU TEXTÍLMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS

Nú í síðustu viku október tók starfsfólk Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi á móti samstarfsaðilum sínum í evrópska rannsóknarverkefninu Centrinno. Heimsóknin var hluti af haustfundi verkefnisins og til Blönduóss komu samstarfsaðilar frá Barcelona og Genf en fundað var á sama tíma í París og Mílanó. Jafnframt sóttu fundinn fulltrúar frá París og Amsterdam og samstarfsaðilar í Háskóla Íslands.

Vinnustofan, sem var í umsjá Textílmiðstöðvarinnar, fjallaði um uppbyggingu Textílmiðstöðvarinnar sem miðstöð sköpunar, vettvangs þar sem fólk deilir þekkingu og kunnáttu og hefur tækifæri til að rannsaka og þróa textíl í víðu samhengi.

Fulltrúar frá sveitarstjórn Húnabyggðar; þau Ragnhildur Haraldsdóttir, Erla Gunnarsdóttir, Elín Aradóttir, Edda Brynleifsdóttir, Birgir Þór Haraldsson og Katrín Margrét Guðjónsdóttir tóku einnig þátt í vinnustofunni sem og Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir frá SSNV ásamt sveitarstjóra Húnabyggðar, Pétri Arasyni. Var mikil ánægja með það hjá starfsfólki Textílmiðstöðvarinnar og samstarfsaðilum þótti mikill akkur í því að fá tækifæri til að vinna með heimafólki. Vinnustofurnar voru haldnar í Félagsheimilinu á Blönduósi og sá Kristín Ósk Bjarnadóttir um veitingar.

Á dagskrá var jafnframt heimsókn í Ullarþvottarstöðina þar sem Guðmann Halldórsson fræddi fólk um starfsemina og íslenska ull. Heimilisiðnaðarsafnið var heimsótt en þar tók Elín Sigurðardóttir á móti gestum. Þá var gamli bærinn á Blönduósi skoðaður undir leiðsögn Katharinu Schneider og þær Stína Gísladóttir og Sveinfríður Sigurpálsdóttir sýndu og sögðu frá Vatnsdæla reflinum. Sameiginlegur kvöldverður var á Brimslóð og á heimleiðinni var komið við í saumastofunni Kidka á Hvammstanga og verksmiðjan og vinnuferlið við framleiðsluna skoðað.

„Við kunnum öllum sem lögðu okkur lið okkar bestu þakkir og vonum við að sem flestir hafi haft af því bæði gagn og gaman að sækja okkur heim og taka þátt í vinnustofunni,“ segir í færslu á Facebook-síðu Textílmiðstöðvar Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir