Telja formann fræðslunefndar Skagafjarðar hafa brotið siðareglur kjörinna fulltrúa

Leikskólakennarar í Skagafirði eru ósáttir. Myndin er frá því fyrir áramót þegar kennarar stóðu verkfallsvaktina. MYND: GG
Leikskólakennarar í Skagafirði eru ósáttir. Myndin er frá því fyrir áramót þegar kennarar stóðu verkfallsvaktina. MYND: GG

Félagsmenn Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði hafa sent frá sér opið bréf til sveitarstjóra og sveitarstjórnar Skagafjarðar þar sem þau koma á framfæri viðbrögðum við því að formaður fræðslunefndar Skagafjarðar, sem er Kristófer Már Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sé einn þeirra sem stefnir Kennarasambandi Íslands fyrir ólögmætt verkfall.

„Við teljum að ákvörðun hans hljóti að vera brot á siðareglum kjörinna fulltrúa þ.e. að formaður fræðslunefndar skuli hafa valið sérhagsmuni fram yfir almannahagsmuni,“ segir m.a. í bréfinu

Bréfið má lesa hér að neðan:

Sauðárkrókur, 29. janúar 2025

Opið bréf til sveitarstjóra og sveitarstjórnar Skagafjarðar

Félagsfólk Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði vill koma á framfæri viðbrögðum sínum við því að formaður fræðslunefndar Skagafjarðar skuli vera einn af þeim sem stefnir m.a. Kennarasambandi Íslands (KÍ) fyrir ólögmætt verkfall. Það er okkar mat að með þessari ákvörðun hafi formaður fræðslunefndar brotið siðareglur kjörinna fulltrúa og brotið traust sem búið er að byggja upp undanfarin ár. Búið er að leggja mikla vinnu í að efla starfsanda og bæta starfsaðstæður í leikskólum Skagafjarðar en með þessari ákvörðun er út um þá vinnu.

Reiðin, vonbrigðin og sárindin sem starfsfólk leikskóla Skagafjarðar og þá einkum félagsfólk Kennarasambandsins, hafa upplifað frá því að formaður fræðslunefndar tilkynnti í skrifum sínum á Vísi að hann væri einn af þeim sem væru að stefna KÍ, þar með kennurum í Ársölum, er ekki hægt að lýsa í orðum. Það að einstaklingur í hans stöðu skuli velja að vera einn af þeim fáu sem völdu að stefna KÍ sýnir berlega hver afstaða hans til leikskólans er. Hann hafði val um að láta aðra um að leita til dómstóla í ljósi þess að hann er formaður fræðslunefndar en valdi að taka þátt með sérhagsmuni að leiðarljósi.

Gjörðir hans hafa nú þegar haft alvarlegar afleiðingar þar sem fyrsta uppsagnarbréf kennara í Ársölum hefur borist leikskólastjóra og eru fleiri kennarar að íhuga að segja upp störfum sínum. Það verður lítið um faglegt leikskólastarf ef það verða engir kennarar eftir til að kenna börnunum. Mjög erfiðlega hefur gengið að manna leikskólana í Skagafirði. Ef fleiri uppsagnir koma í kjölfar ákvörðunar formanns fræðslunefndar þá myndu þær leiða til þess að leikskólarnir geta ekki haldið öllum deildum opnum með tilheyrandi afleiðingum. Við teljum að ákvörðun hans hljóti að vera brot á siðareglum kjörinna fulltrúa þ.e. að formaður fræðslunefndar skuli hafa valið sérhagsmuni fram yfir almannahagsmuni.

Félagsfólk Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði vilja með bréfi þessu hvetja sveitarfélagið til að taka afstöðu með kennurum og bæta úr þeim skaða sem nú þegar hefur orðið og reyna að koma í veg fyrir enn meiri skaða. Það veltur á ákvörðun sveitarfélagsins í þessu máli hvort eitthvað fagfólk verður eftir í leikskólum Skagafjarðar að verkfalli loknu, komi til þess.

Félagsmenn Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir