Taktu þátt í könnun um LOFTBRÚ

Ekki er lengur áætlunarflug á Sauðárkrók. Er möguleiki að það breytist mep tilkomu LOFTBRÚAR?  MYND: MÝFLUG
Ekki er lengur áætlunarflug á Sauðárkrók. Er möguleiki að það breytist mep tilkomu LOFTBRÚAR? MYND: MÝFLUG

Verkefninu LOFTBRÚ var hleypt af stokkunum síðla árs 2020 en í gegnum það öðlast íbúar dreifbýlisins á skilgreindum svæðum 40% afslátt fyrir sex flugleggi (þrjár ferðir fram og til baka) á ári. Í frétt á vef SSNV segir að þar sem ekki hafiverið reglubundið flug til Sauðárkróks í nokkurn tíma hafa íbúar Norðurlands vestra kannski ekki verið mjög meðvitaðir um að viss hluti svæðisins, póstnúmer 540 til 570, fellur undir skilgreinda fjarlægð frá höfuðborginni, sem gefur rétt til þess að nýta sér afsláttarkjör Loftbrúarinnar.

„Þó eitthvað sé um það að fólk af svæðinu hafi nýtt sér þessi kjör tengt Akureyarflugi er það almennt mat að það sé þó brotabrot af því samanborið við það ef reglubundið flug væri frá Sauðárkróki.

Landshlutasamtök, Vegagerðin og Byggðastofnun standa nú fyrir könnun sem dreift er á póstnúmer sem geta nýtt sér úrræðið til að bæta aðgengi landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu í höfuðborginni ofl. Er markmiðið að meta notagildi og hlutverk Loftbrúar, fyrir árið 2021, út frá reynslu notendahópsins s.s. samsetningu hans, tilgang ferða, hvort ferðum hafi fjölgað, upplifun, bókanir, hverjir eru kostir úrræðisins og annmarkar.

Það tekur um það bil 10 mínútur að svara þessari könnun. Hvert svar er mikilvægt innlegg í þróun þessa úrræðis. Farið er með allar upplýsingar samkvæmt lögum um persónuvernd, engin svör eru rakin til einstakra svarenda og unnið með niðurstöður sem heild.

Sjá nánar á vef SSNV >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir