Stefnir í mikinn viðburð í Textílmiðstöðinni á Blönduósi

Síðasta helgin í ágúst, dagana 27. - 29. verður viðburðarík í Textílmiðstöðinni á Blönduósi en þá eru allir velkomnir í opið hús í TextílLabinu að Þverbraut 1. Á staðnum eru geislaskeri, vínyl prentari, útsaumsvél, nálaþæfingarvél og stafrænn vefstóll. Í tilkynningu frá Textílmiðstöðinni segir að smiðjustjóri muni aðstoða við notkun á smiðjunni og verður aðgengi frítt, en greitt fyrir það efni sem notað er.

Þá verður haldin „pop-up” sýning listamanna í Ós Textíllistamiðstöð laugardag og sunnudag, milli klukkan 11 og 18 en þar munu vefarar, litarar, prjónarar og sjónlistamenn frá Kanada, Bandaríkjunum, Hollandi, Chile og Ítalíu bjóða öllum að koma og skoða listaverkin sem eru innblásin af íslensku umhverfi, menningu og sögu. Þau verða til sýnis í húsnæði Textílmiðstöðvarinnar í Kvennaskólanum (Árbraut 31) og TextílLab (Þverbraut 1). Boðið verður uppá veitingar á sunnudaginn á milli 16-18.

Verkefnið ,,Þráðhyggja” verður kynnt á sama tíma. Það fjallar um að lengja líftíma textíls og endurnýtingu með þekktum íslenskum aðferðum, unnið af hönnuðunum Sólveigu Hansdóttur og Berglindi Ósk Hlynsdóttur. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og unnið í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands og Listaháskóla Íslands.

Á laugardag og sunnudag verða síðan haldin þriggja tíma námskeið „Wool Interactions / ullarsamskipti“ (sama námskeið kennt tvisvar) undir leiðsögn Zoe Romano. Námskeiðin fara fram á ensku en sjá má nánari kynningu og skráningu á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar, www.textilmidstod.is

Bent er á að gestir verða að bóka tíma í Opið Hús í TextílLab og „Wool Interactions“ en það er hægt að gera á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir