Starf menningar- og tómstundafulltrúa á Skagaströnd auglýst að nýju
Húnahornið greinir frá því að sveitarfélagið Skagaströnd hafi hætt við að ráða í starf menningar- og tómstundafulltrúa á grundvelli auglýsingar sem birt var um starfið. Auglýsa á starfið að nýju með breyttum áherslum. Þetta kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar frá því á föstudaginn. Starfið var auglýst í sumar og bárust sjö umsóknir.
Á sveitarsstjórnarfundi 16. ágúst síðastliðinn var ákvörðun um ráðningu frestað þar sem verið var að vinna úr gögnum um umsækjendur.
„Samkvæmt auglýsingu í sumar var verkefni menningar- og tómstundafulltrúa að hafa umsjón með félagsmiðstöðinni og tómstundastarfi aldraðra, að vera tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, vinna í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamiðstöðvar og hafa umsjón með ungmennaráði. Einnig átti viðkomandi starfsmaður að hafa aðkomu að verkefni um barnvæn sveitarfélög, vera tengiliður og umsjónaraðili með verkefninu Heilsueflandi samfélag og koma að undirbúningi viðburða á vegum sveitarfélagsins,“ segir í frétt Húnahornsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.