Staða HSN vegna Covid þyngist - 233 í einangrun á Norðurlandi vestra

Stöðutafla frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.
Stöðutafla frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.

Smitum á Norðurlandi fer hratt fjölgandi sem hefur mikil áhrif á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands en á heimasíðu hennar kemur fram að vaxandi fjöldi starfsmanna sé frá vinnu vegna Covid eða 67 starfsmenn af 609, sem gerir 11% starfsmanna. Vísbendingar eru um að þetta hlutfall geti hækkað á næstu dögum. Jafnframt segir í frétt stofnunarinnar að nokkur fjöldi starfsmanna vinni nú í vinnusóttkví B.

„Staðan er sérstaklega þung á Húsavík og Akureyri og fer versnandi á Sauðárkróki, í Fjallabyggð og á Blönduósi. Á Húsavík er hópsmit á hjúkrunar- og sjúkradeildum en þar eru sjö skjólstæðingar með virkt Covid smit. Mikil aðsókn er í PCR sýnatökur á öllu Norðurlandi en í dag eru yfir 1400 sýni á áætlun og 75 hraðpróf.

Fjarvera starfsmanna og mikið álag í sýnatökum valda því að forgangsraða getur þurft þjónustunni. Í heimahjúkrun þarf til að mynda að forgangsraða heimsóknum. Á heilsugæslustöðvum er áhersla lögð á bráðaþjónustu og fyrirséð er að við munum neyðast til að afbóka eitthvað af skráðum tímum. Bólusetningar eru áfram í forgangi og verða áður auglýstir bólusetningadagar óbreyttir,“ segir á hsn.is
Vegna þessa ástands óskar HSN eftir fólki á bakvarðalista stofnunarinnar en hægt er að skrá sig HÉR.
„Íbúar á Norðurlandi eru beðnir um að sýna stöðunni skilning. Vonandi verðum við komin yfir erfiðasta hjallann sem allra fyrst.“

233 í einangrun á Norðurlandi vestra

Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra frá því í dag má sjá að nú eru alls 233 í einangrun á Norðurlandi vestra, hefur fjölgað um 35 frá því á laugardag. Flestir sem hafa greinst eru á Sauðárkróki alls 129 og um annað sætið bítast Skagaströnd og dreifbýli Varmahlíðar. Sem fyrr eru þrjú póstnúmer eru laus við smit; 500 Staður, 565 Hofsós og 570 Fljót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir