Snjallmenni tekið í notkun hjá Þjóðskrá Íslands
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
14.10.2020
kl. 13.41
Þjóðskrá Íslands hefur tekið í notkun snjallmenni í netspjalli á vef stofnunarinnar www.skra.is. Snjallmennið getur svarað ýmsum spurningum um starfsemi Þjóðskrár Íslands og bent viðskiptavinum á gagnlegar slóðir.
Á vef Þjóðskrár kemur fram að þessi nýjung sé viðbót við þjónustuver stofnunarinnar og er ætlað að flýta og bæta þjónustu við viðskiptavini með aukinni sjálfvirkni.
Hægt er að fá samband við ráðgjafa í þjónustuveri milli klukkan 9 og 15 alla virka daga ef snjallmennið getur ekki svarað spurningum viðskiptavina. Utan opnunartíma tekur snjallmennið við fyrirspurnum og svarar eftir fremstu getu en annars tekur það við skilaboðum sem bíða afgreiðslu næsta virka dag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.