Smávirkjanir á Norðurlandi vestra - Lyftistöng fyrir bændur og atvinnulífið?
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa látið vinna frumúttekt á mögulegum smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra. Nær úttektin til meira en 80 staða í landshlutanum. Verkefni þetta var áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshluta árið 2017 og verður því fram haldið á þessu ári og því næsta.
Verkefnið verður kynnt í fundarsal Verkalýðsfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi, fimmtudaginn 30. ágúst, klukkan 14-16 og eru allir velkomnir.
Dagskráin er á þessa leið:
1. Kynning á skýrslu um frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra – Bjarki Þórarinsson, Mannviti.
2. Smávirkjanaverkefni Orkustofnunar – Erla Björk Þorgeirsdóttir, Orkustofnun.
3. Reynslusaga – Vignir Sveinsson, Höfnum.
4. Hleðsla í hlaði – Tjörvi Bjarnason, Bændasamtökum Íslands.
5. Styrkir til rannsókna á mögulegum smávirkjunum – Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
6. Fyrirspurnir og umræður.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.