Skrifað undir viljayfirlýsingu um aukinn flutning raforku til gagnaversins á Blönduósi
Á heimasíðu Landsnets var sagt frá því seinni partinn í júlí að Landsnet og Etix Borealis, sem rekur gagnaver á Blönduósi, hafi undirritað viljayfirlýsingu um aukinn flutning á raforku til gagnaversins. Aukningin fer fram í áföngum, þar sem í fyrsta áfanga verður nýtt svokallað snjallnet (smartgrid) til að auka flutninginn og tryggja rekstraröryggi flutningskerfisins.
Í fréttinni er haft eftir Birni Brynjúlfssyni, forstjóra Etix Everywhere Borealis að það sé ánægjulegt að getanýtt snjallnet til að bæta nýtingu flutningskerfisins og þannig auka rýmd gagnaversins og sjálfbærni þess. „Ísland er góður staður fyrir aðila sem leita eftir öruggum og umhverfisvænum gagnaverslausnum. Við teljum okkur vera að mæta þessum kröfum með gagnaverinu á Blönduósi, en reksturinn hefur gengið vonum framar frá opnun árið 2018. Við hlökkum til að geta mætt vaxandi eftirspurn eftir umhverfisvænum gagnaverslausnum með þessari aukningu.“
Fram kemur að snjallnet er samheiti yfir tækninýjungar sem nýta fjarskipta-, stýri- og upplýsingatækni til að tryggja sem öruggasta afhendingu rafmagns og hámarka jafnframt nýtingu raforkukerfisins. „Með snjalltækni er notaður háþróaður tæknibúnaður til að bregðast við breytingum í orkuflutningum með sjálfvirkum hætti með gagnvirkum stýringum og háþróuðum varnarkerfum. Þetta gerir kerfið betur í stakk búið að takast á við breytingar og sveigjanlega notkun eða framleiðslu. Með notkun snjalltækninnar er mögulegt að nýta mun betur mannvirki raforkukerfisins sem kemur notendum til góða í lægri flutningsgjöldum til lengri tíma. Í þessu verkefni tekur Landsnet nýtt skref í nýtingu þessarar tækni sem mun verða í fremstu röð meðal raforkuflutningsfyrirtækja í heiminum,“ segir jafnframt í fréttinni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.