Skattaskil til 14. mars
Til að opna framtalið þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil. Unnt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Mælt er með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningu. Hér eru Upplýsingar um rafræn skilríki. Hér er linkur inn á þjónustusíðuna til að opnað framtalið.
Auðkenning barna yngri en 18 ára
Þau sem náðu 16 ára aldri á árinu 2024 þurfa að skila skattframtali í fyrsta sinn nú árið 2025. Þau sem ekki eiga rafræn skilríki geta sótt um veflykil og nýtt hann til auðkenningar á þjónustusíðu. Mögulegt er að fá veflykil sendan í pósti á lögheimili eða sendan í heimabanka viðkomandi.
Upplýsingar um rafræn skilríki barna undir 18 ára - Sækja veflykil
Erlendis búsettir
Þau sem búsett eru erlendis geta þurft að skila skattframtali á Íslandi þrátt fyrir búsetu erlendis, t.d. ef viðkomandi hefur fengið tekjur frá Íslandi á árinu 2024, á eignir á Íslandi eða sækist eftir skattalegri heimilisfesti, svo dæmi séu tekin.
Eigi fólk búsett erlendis ekki þess kost að nýta sér rafræn skilríki og eigi ekki nú þegar virkan veflykil er hægt að sækja um að fá nýjan veflykil sendan. Fylla þarf út þar til gert form og verður beiðni um veflykil afgreidd eins fljótt og auðið er. Sækja veflykil erlendis búsettra
Framtalsaðstoð
Við veitum aðstoð í síma 442 1414 og tökum á móti fyrirspurnum á netfanginu framtal@skatturinn.is. Þá getur spjallmennið svarað allskyns spurningum um framtalið.
Leiðbeiningar
Framtalsleiðbeiningar er hægt að nálgast inni í framtalinu með því að smella á bláa spurningamerkið við hvern kafla.
Einnig má spyrja spjallmennið okkar, þar er hægt að fá svör við mörgum spurningum. Spjallmennið talar bæði íslensku og ensku.
Þá er einnig hægt að fá leiðbeiningar í bæklingaformi. Vakin er sérstök athygli á einfölduðum leiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við framtalsskil. Sá bæklingur er aðgengilegur á sjö tungumálum. Framtalsleiðbeiningar
Álagning
Niðurstaða álagningar mun liggja fyrir eigi síðar en 30. maí 2025 og verður hún birt á þjónustuvef Skattsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.