Skagaströnd tekur þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög
Á vef Skagastrandar segir af því að Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri, hafi heimsótt Höfðaskóla á þessum fallega föstudegi til að skrifa undir samninginn Barnvæn sveitarfélög við UNICEF og Mennta- og barnamálaráðuneytið í viðurvist nemenda úr Höfðaskóla. Um er að ræða verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi.
Í fréttinni segir: „Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996. Verkefnið byggir jafnframt á efni frá umboðsmönnum barna í Noregi og Svíþjóð og UNICEF í Finnlandi. UNICEF á Íslandi hefur umsjón með verkefninu en verkefnið er stutt af félagsmálaráðuneytinu.“
Sveitarfélög sem taka þátt og innleiða Barnasáttmálann geta hlotið viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög en innleiðingarferlið tekur í það minnsta tvö ár og skiptist í átta skref sem sveitarfélag stígur með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna.
Að tveimur árum liðnum getur sveitarfélagið sótt um viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi en viðurkenningin er háð því að starfsfólk UNICEF meti sem svo að innleiðingarferlið hafi verið réttindum barna í sveitarfélaginu til framdráttar og að aðgerðaráætlun verkefnisins hafi verið fylgt eftir og komist til framkvæmdar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.