Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit tekið í notkun á morgun
Meðalhraðaeftirlit á tveimur vegarköflum verður gangsett á morgun, 16. nóvember 2021 kl. 12:00. Í fyrsta sinn á Íslandi verður sú aðferð notuð að reikna út meðalhraða bifreiða á milli tveggja punkta á sjálfvirkan hátt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að rannsóknir sýni að sjálfvirkt hraðaeftirlit virki vel til að halda niðri umferðarhraða og fækka slysum. Þar á bæ er vonast til að hægt verði að fjölga meðalhraðaköflum á næstu misserum.
„Kaflarnir sem um ræðir eru í Norðfjarðargöngum annars vegar og á Grindavíkurvegi, milli Bláalónsvegar og Grindavíkur, hins vegar. Undirbúningur hefur staðið yfir frá árinu 2017 en tilraun með sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit hér á landi var fyrst gerð árið 2015 með aðstoð norsku vegagerðarinnar.
Vegagerðin ber ábyrgð á tæknilegri framkvæmd eftirlitsins, en Ríkislögreglustjóri ber ábyrgð á úrvinnslu og innheimtu sekta. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti í september uppfærðan samstarfssamning Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Ríkislögreglustjóra um sjálfvirkt hraðaeftirlit með löggæslumyndavélum.
Uppsetningu búnaðarins í Norðfjarðargöngum og á Grindavíkurvegi lauk fyrir nokkru og vottaður kvörðunaraðili hefur tekið kerfið út. Vonast er til að hægt verði að fjölga meðalhraðaköflum á næstu misserum en framhaldið ræðst af fjárveitingum. Hraðamyndavélar eru fyrst og fremst settar upp á köflum þar sem slys eru mörg, en einnig er lögð áhersla á að setja slíkan búnað upp í jarðgöngum til að draga úr líkum á að slys verði,“ segir í skeyti Vegagerðaeinnar.
Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit byggir á því að meðalhraði ökutækis sem fer tiltekna vegalengd er reiknaður út með því að deila í vegalengd með tíma. Þá vinna tvær myndavélar saman fyrir hvora akstursstefnu, þar sem önnur er staðsett í byrjun kaflans en hin í enda kaflans. Teknar eru myndir af öllum ökutækjum og búnaðurinn greinir hversu lengi ökumaður var að aka á milli myndavélanna og reiknar þannig út meðalhraða ökutækisins á kaflanum. Ef útreiknaður hraði er meiri en leyfilegt er telst viðkomandi ökumaður brotlegur og eftir það sér lögregla um frekari úrvinnslu og sektarboð. Öll gögn eru dulkóðuð og myndir af þeim sem ekki eru brotlegir eyðast sjálfkrafa í myndavélunum. Eftirlitskaflarnir hafa verið merktir með skiltum sem gefa eftirlitið til kynna.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.