Samúel Rósinkrans Kristjánsson ráðinn umsjónarmaður Eignasjóðs

Samúel Rósinkrans Kristjánsson. Mynd tekin af skagafjörður.is
Samúel Rósinkrans Kristjánsson. Mynd tekin af skagafjörður.is

Á heimasíðu Skagafjarðar segir að Samúel Rósinkrans Kristjánsson var ráðinn í starf umsjónarmanns Eignasjóðs á Veitu- og framkvæmdasviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Eignasjóður Skagafjarðar leigir út fasteignir til stofnana og einstaklinga. Eignasjóður leggur áherslu á gott samstarf og þjónustu við viðskiptavini sína og hefur að leiðarljósi fagleg vinnubrögð við hönnun, framkvæmd og viðhald húsnæðis.

Samúel Rósinkrans fékk sveinspróf sem húsasmiður árið 2014 og útskrifaðist sem húsasmíðameistari frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra árið 2018, ásamt því að hafa byggingastjóraréttindi. Hann hefur umfangsmikla reynslu af allri almennri smíðavinnu en undanfarin ár hefur hann starfað sjálfstætt. Reynsla hans og fagleg þekking á eftir að koma að góðum notum í starfi hans hjá sveitarfélaginu. Samúel mun hefja störf 12. ágúst nk. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir