Samningur um sálfræðiþjónustu í Austur-Húnavatnssýslu

Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri, Ester Ingvarsdóttir sálfræðingur og Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri við undirritun samningsins. Mynd: Svf. Skagaströnd.
Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri, Ester Ingvarsdóttir sálfræðingur og Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri við undirritun samningsins. Mynd: Svf. Skagaströnd.

Félags- og skólaþjónusta Austur Húnavatnssýslu og Sensus slf. undirrituðu í gær 2 ára samning sem lýtur að sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum í Austur Húnavatnssýslu ásamt auknu samstarfi við barnavernd á svæðinu.

Markmiðið með nýjum samningi er að efla sálfræðiþjónustu á svæðinu. Ester Ingvarsdóttir hefur starfað fyrir Félags- og skólaþjónustu A-Hún síðastliðinn sex ár og hefur haft fasta viðveru í hverjum mánuði og með nýjum samning er Ester nú með viðveru í allt að viku einu sinni í mánuði.

/SMH

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir