Sálfélagsleg þjónusta við börn og ungmenni efld hjá HSN með nýju geðheilsuteymi barna

Eins og tilkynnt hefur verið mun þjónusta sem barna- og unglingageðteymi (BUG) hefur veitt á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) færast til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) frá og með 1. október. Verður hún hluti af sálfélagslegri þjónustu HSN sem hefur sinnt grunnþjónustu (vægum til miðlungs vanda) við börn og fullorðna og sinnt einstaklingum með alvarlegri og flóknari vanda innan geðheilsuteymis fullorðinna.

  • Fleiri stöðugildi en áður - vel gekk að ráða í störf sérfræðinga
  • Öflug geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn á Norður- og Austurlandi

Í kjölfar þessarar tilfærslu mun HSN einnig geta veitt börnum með alvarlegri og flókinn vanda þjónustu, bæði á Norður- og Austurlandi með stuðningi Geðheilsumiðstöðvar barna. Í kjölfar þessa hefur stöðugildum í geðheilsuteymi barna og ungmenna verið fjölgað frá því sem var hjá SAk og nýir sérfræðingar ráðnir til starfa.

María Bjarnadóttir, félagsráðgjafi hefur verið ráðin teymisstjóri og félagsráðgjafi teymisins. Hún starfaði áður sem teymisstjóri meðferðarteymis hjá barna- og unglingageðdeild Landsspítala (BUGL). Þá bætist við Anna Lilja Sigurvinsdóttir, sálfræðingur sem áður var í geðheilsuteymi fullorðinna á HSN og Ingibjörg Ragna Malmquist, sálfræðingur sem var á stofu og þar áður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hugrún Hauksdóttir læknir, Friðrik Már Ævarsson, sálfræðingur, Róshildur Arna Ólafsdóttir, sálfræðingur og Elín Karlsdóttir, sálfræðingur voru öll starfandi í BUG teyminu á SAk og munu halda áfram því starfi í nýju geðheilsuteymi hjá HSN. Ester Dögg Jónsdóttir heilbrigðisgagnafræðingur verður einnig hluti af teyminu en hún starfar hjá HSN í dag.

„Við sjáum mikil tækifæri til að efla þjónustu og samfellu í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Norðurlandi og Austurlandi undir hatti HSN og því er gríðarmikill styrkur að fá reynt og gott fólk til starfa í nýtt geðheilsuteymi. HSN hefur mikinn metnað til að gera þetta vel.“, segir Alice Harpa Björgvinsdóttir, forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu hjá HSN. „Núna verður þjónustan öll á einum stað sem gerir boðleiðir styttri, eflir þverfaglega samvinnu og bætir flæði á milli þjónustustiga. Þá gerir stærra teymi en áður okkur kleift að sinna fleiri börnum og unglingum en áður. Við bjóðum nýtt fólk hjartanlega velkomið til starfa.“

Geðheilsuteymi HSN mun sinna börnum með miðlungs til alvarlega flókinn vanda sem þurfa aðkomu teymis eða fyrir þau börn sem þurfa meiri, lengri og sérhæfðari þjónustu en veitt er í grunnþjónustu heilsugæslunnar. Þá mun geðheilsuteymið einnig sinna þjónustu við börn og ungmenni í heilbrigðisumdæmi Austurlands. Markmiðið er að efla þjónustu fyrir börn og unglinga í nærumhverfi þeirra og fjölskyldna þeirra í góðu samstarfi við samstarfsstofnanir, eins og t.d. SAk, BUGL, Geðheilsumiðstöð barna, heilsugæslur í heimabyggð, skóla og félagsþjónustu. Bráðamálum verður sem áður sinnt á Sjúkrahúsinu á Akureyri en í samvinnu við geðheilsuteymi HSN til að tryggja samfellu þjónustunnar.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir