Salbjörg Ragna er íþróttamaður USVH 2016

Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Keflavík. Mynd: Karfan.is
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Keflavík. Mynd: Karfan.is

Kjöri Íþróttamanns ársins hjá USVH var lýst í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga fimmtudaginn 29. desember.  Þar var Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Keflavík kjörin Íþróttamaður USVH árið 2016.

Salbjörg Ragna hlaut 51 stig í kjörinu en í  öðru sæti var Ísólfur Líndal Þórisson hestaíþróttamaður frá Lækjamóti í Víðidal með 20 stig og í þriðja sæti Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona hjá Umf. Val með 19. Verðlaunahafar hlutu eignarbikara og Salbjörg farandbikar auk styrks frá Landsbankanum á Hvammstanga.

Á heimasíðu USVH segir að Salbjörg hafi stimplað sig inn sem einn af lykilleikmönnum hjá Keflavík sem trónir nú á toppi Dominos deildarinnar sé sterkur varnarmaður. Eins og undanfarin ár leiðir hún deildina með 25 varin skot. Hún var einnig valin inn í A-landslið kvenna 2016 og hefur spilað þrjá leiki og staðið sig með prýði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir