Sæþór er nýr framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Tindastóls

Sæþór Már Hinriksson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Tindastóls. AÐSEND MYND
Sæþór Már Hinriksson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Tindastóls. AÐSEND MYND

Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hefur ráðið Sæþór Má Hinriksson í starf framkvæmdastjóra deildarinnar. Sæþór mun vinna náið með stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls, barna- og unglingaráði félagsins og þjálfurum.

Sæþór, sem á rætur að rekja að Syðstu-Grund í Blönduhlíð, er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og diplómugráðu í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur þegar hafið störf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir